Hurðaskellir og formúla

 

 

Af hverju ætli sumt fólk taki aldrei tillit til annarra, gangi um eins og það sé eitt í heiminum ? Gangi t.d. aldrei öðruvísi um en að skella á eftir sér hurðum svo maður fer lárétt upp úr rúminu á morgnana eða hrekkur upp á kvöldin við þessa helv. skelli.  Náðu mér ekki í morgun, var vöknuð í formúluna, en þegar ég ætlaði að leggja mig eftir leikinn þá byrjuðu skellirnir. Ætli hurðin sé það sem kallað er "rík í stöfum og frek í falsi" eða bara leiðinlegur ávani. Ógeððððslega pirrrrrrandi.

En að formúlunni, hún hefði geta farið betur.

Að afla sér mikils sannleiksforða, er að kaupa sér lífsábyrgð

 


F1

Japanski kappaksturinn 

Gleymdi að stilla vekjaraklukkuna í gærkvöldi eða réttara sagt gleymdi að formúlan væri í Japan og missti þar af leiðandi af tímatökunni í morgun. Man eftir klukkunni í kvöld því ekki ætla ég að missa af ræsingunni á morgun. Ég er nú ekki alveg sátt við ráspólinn en það geta ekki allir verið fremstir.

Upp fyrir mínum mönnum.

 

Oft kemur gjöf til gjalda


lífið

 

 Maðurinn er allt sitt líf að læra að lifa og allt lífið verður hann að nota til þess að læra að deyja


Neikvæðir vextir

 Getur einhver útskýrt fyrir mér (á mannamáli) hvers vegna vextir voru neikvæðir jan-jún 2007.

 Yfirlit yfir greiðslur í viðbótarlífeyrissparnað Landsbankans.
 
Inneign 01.01.2007 kr. 66.372.-
Ávöxtun -2.781.-
Inneign 30.06.2007 kr.63.591.-
Sem sagt innistæðan hefur lækkað um kr 2.781.- á sex mánuðum.
Einhversstaðar verður að ná í bankastjóralaunin.
 
Þetta finnst mér svívirðilegt og enginn virðist tala um þetta, ekki hef ég séð umfjöllun um þetta í blöðunum.

 

Lukkan gengur í lið með þeim sem hafa góða dómgreind


Polarolje

Polarolje

Alltaf verið að leita leiða til að bæta heilsuna, nú er það Polarolje sem er sellýsi, unnið úr spiki af grænlenskum sel. Það góða við þetta lýsi er að það kemur ekki svona upp í hálsinn á manni eins og þorska- og ufsalýsi. En dýrt er það kr. 8.604.- pr. ltr. Dýrara en gott koníak.

Ætli þýði að sækja um olíustyrk til Tr. svona eins og bensínstyrk ?

GOD FOR ØMME LEDD OG MUSKLER

Gleymdu ekki að virða sjálfan þig og þá munu aðrir læra að virða þig

 


Styrktarfélag Perthes-sjúkra ???

 

 

http://www.internet.is/annaz/perthes/

Sjúkdómur Legg-Calvé-Perthes ber nafn þeirra sem lýstu honum fyrst. Um er að ræða drep í efsta hluta lærleggsins (caput femoris), það er í þeim hluta sem liggur í mjaðmaskálinni. Drepið orsakast af því að þessi hluti lærleggsins fær ekki nægilegt súrefni vegna minnkaðs blóðflæðis og deyr þá beinvefurinn.

Þessi sjúkdómur kemur oftar fyrir hjá drengjum en stúlkum. Algengastur er hann á aldrinum 5 - 9 ára, en getur komið fyrir allt niður í 2 ára og upp í 11 ára aldur. Einkenni sjúkdómsins eru verkir í mjöðm og helti. Á röntgenmynd sést að það eru eyður í beininu þar sem beinvefurinn hefur dáið. Nýtt bein myndast á 2 - 3 árum, en yfirleitt veldur þessi sjúkdómur aflögun á beininu sem aftur getur valdið skemmd á mjaðmarliðnum. Meðferðin miðast að því að koma í veg fyrir, eins og hægt er, að mikil aflögun verði á beininu. Það er gert með því að setja barnið í gifs eða með skurðaðgerð.

Flestir sem fá þennan sjúkdóm ná sér að fullu.


Hélt ég væri dauð.....

....þegar ég vaknaði í morgun eftir tæplega 9 tíma svefn, hefur ekki gerst í marga, marga mánuði. Sef venjulega 1-2 tíma í senn. Þarf kannski að reiðast Steingrími H á hverju kvöldi. Það er spurningin.

Djúpstæð þörf.....

Ég settist niður við sjóvarpið í kvöld til að hlusta á Evu Maríu ræða við Steingrím Hermannsson, ætlaði bara að njóta stundarinnar en hún snerist upp á andhverfu sína þegar Eva spurði Steingrím, "Skilurðu samt ekki þessa djúpstæðu þörf sem að fólk virðist hafa til þess að komast að því hverra manna það er" og S.H. svaraði "ja, ég skil og skil ekki, ef að fólk hefur haft, einhver maður eða kona, hefur haft mjög góða uppeldisforeldra, þá er þeim ekki heiður sýndur, finnst mér með svona málaferlum. Þarna stóð ég upp.

Það var svo ólýsanlega sárt að heyra manninn segja þetta, hann veit sem betur fer ekki hvað er að ganga í gegnum svona hremmingar, að vita bókstaflega ekki hver maður er. það bara getur enginn sett sig í spor fólks sem þarf að ganga í gegnum svona að vita ekki hvar rætur þess liggja. Það er ekki spurning um heiður þeirra sem hafa alið mann upp, það er réttur hvers og eins að vita uppruna sinn.

 


Kvöldmaturinn

tilbúnar á pönnunaKomnar í pottinnTeista (Cepphus grylle)

 Nammi.......nammi.......namm.......fyrir utan hollustuna


Spurn

 

Friðrik Guðni Þorleifsson 

 (úr Lesbók Mbl. 6. September 1970)

Mér er spurn

Skyldi rómantíkin

vera farin

að gliðna eitthvað

á saumum?

Á þessari tæknivæddu

öld

þegar Rauðhetta

tekur leigubíl

með hassið til ömmu

sem hlýðir hugfangin

á úlfinn

hrækja raddböndunum

oní kassagítarinn sinn

þegar Þyrnirós

vaknar timbruð á hádegi

á sunnudögum

og rámar í prinsinn

útúrfullan í partíinu

kvöldið áður

sem sagt

á þessarri tæknivæddu

raunsæisöld

þegar stjúpmæðurnar

koma þeysandi

á hvítum kádiljákum

að frelsa drekann

úr klóm

dverganna sjö

er svar mitt

já.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband