Bindishnútur

Á heimilinu voru til skamms tíma fjórir karlmenn, aðeins einn þeirra kann að gera bindishnút. Í gær vorum við hjónin að fara í matarboð og bóndinn ætlaði að tjalda nýja bindinu sem keypt var í síðustu Reykjavíkurferð. En ó,ó, sá sem kann að binda hnút ekki tiltækur svo ég tók að mér að gera hnútinn, ekki gat ég látið hann fara með einhvern rembihnút um hálsinn í veisluna. Meðan ég var að binda var ég eitthvað að tauta um að jólagjöfin til þeirra (karlm. þriggja) væri fundin, myndbandsspóla með kennslu í bindishnúta gerð.  

 Picture 004

Hnúturinn sem ég hnýtti í gær, kannski ekki alveg 100% en skárri en pelastikk sem hann er góður í og hefur reynt að kenna mér.

Það gekk ekki að gefa þeim svona spjald með leiðbeiningum.

Mér datt í hug að goggla orðið "bindishnútur" og fann þá alveg snilldar síðu.

Þarftu að mæta með bindi?

Ertu upp á konuna þína kominn með bindishnútinn? Er bindið enn með hnút sem var bundinn á það á síðustu jólum?

http://nkn.khi.is/nkn05/

Nú gæti ég bara vísað mínum manni á tölvuna en þá kom upp annað vandamál, minn ektamaki er haldinn þvílíkri tölvufælni að ég get bara ekki lagt þetta á hann. Svo nú gefst ég bara upp á hnútakennslu og geri þetta sjálf. Læt ekki einhvern ómerkilegan bindishnút komast upp á milli vina, nóg af hnútum í þessu þjóðfélagi.

Að lifa er eins og að elska - skynsemin mælir gegn því en heilbrigðar hvatir með því


Afmæli

 

 

Til hamingju með daginn strákur


Vínbúðir á landsbyggðinni...

 koma þær til með að leggjast af ef léttvínsfrumvarpið verður samþykkt? þ.e. léttvín og bjór verði selt í matvöruverslunum. Ég sé ekki fyrir mér að smáverslanir úti á landi geti keypt inn lager af þessum veigum. Þá er ég viss um að mörgum útsölustöðum Ríkisins á landsbyggðinni verði lokað þar sem ekki borgi sig að reka þá bara á sterkum vínum.

Við förum þá aftur á þann reit að panta vín í póstkröfu, panta nógu mikið í einu, til að eiga, en oft vildi það nú verða svo hjá sumum að það var drukkið meðan eitthvað var til. Þá sé ég nú ekki fyrir mér að Bónus sendi léttvín og bjór í póstkröfu.

Þetta getur gengið á stór Reykjavíkursvæðinu en ekki á landsbyggðinni.

Ég er á móti þessu frumvarpi.


Er Áman ekki opin ennþá ? Maður verður að fara að grafa upp gömlu græjurnar.

Brugg

Hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta



Bakhitabakstur

 

Bakhitabakstur

Búin að fá svona bakhitabakstur og lofar hann góðu.

http://www.lifsorka.com/

 

Ef eina verkfæri þitt er hamar verða öll vandamál þín naglar


Laugardags-

 lögin, æiii eitthvað var þetta ekki að gera sig 

 

"Ást og vinátta eiga aldrei samleið"


Í ólgandi sjó

 

 

 

Bogamaður  ::  22.nóv-21.des
 
Hér kemur fram að þú bregst við nánast öllu af tilfinningahita af einhverjum ástæðum en hér þarfnast stjarna þín jafnvægis. Þú dylur jafnframt oft eigin tilfinningar fyrir þeim sem ekki þekkja þig náið. Þú birtist sem skúta á lygnum sæ en innra með þér líður þér á við ólgandi hafsjó. Starf þitt mun taka stakkaskiptum innan tíðar.

"Að vera eðlilegur er erfitt hlutverk" 


Rokkpils

 

Rock___Roll_Skirt_-_GreenÉg man þegar ég var um 10-12 ára þá saumaði mamma á okkur systurnar svokölluð rokkpils og fyrsta daginn í nýja pilsinu þurfti ég nú að bregða mér út um gluggann í herberginu mínu (sem var á neðri hæð hússins) og festi pilsið í gluggakrækjunni og reif það. Mamma klippti út úr svörtu efni kött sem hún saumaði yfir rifuna, pilsið var að mig minnir ljósfjólublátt. Ég held bara að pilsið hafi verið flottara á eftir.

Nýlega rakst ég svo á svona pils á netinu, þau eru semsagt enn í tísku eftir tæp 50 ár. Þetta pils er með hundi en mitt var með ketti.

 

"Með því að reyna það "ómögulega"má ná eins langt og hægt er"


Hvítt eða svart

Picture 022

Eins og sé ekki sama hvort sviðin eru af hvítu eða svörtu sauðfé, öll jafn góð ef þau eru sviðin á réttan hátt ekki með súrgasi eða einhverju svoleiðis. Þá eru nú sviðalappirnar sælgæti eða hrútspungarnir. En þetta er nú að verða ófáanlegt eins og aðrar sláturafurðir, sem eru að mati fræðinga óhollar.

Gleymi því ekki þegar ég var á hælinu Reykjalundi, þá var haldinn fyrirlestur um óhollustu innmatar s.s. hjörtu, nýru, lifur, blóðmör og lifrarpylsa, þetta var nánast banvænt að mati fyrirlesara en þegar komið var í matsal hælisins var okkur boðið upp á m.a. sviðasultu og slátur.

Held nú að innmatur (í hófi) sé ekkert óhollari en hver annar matur.

 

 "Að beygja sig sjálfur er engin óvirðing, en að vera beygður af öðrum er skömm"


Laukurinn

 

 Ég er sko laukurinn,(þið vitið þessi ættarl......) allavega komumst við að því í gærkvöldi ég og vinkona mín.

"Þeir syngja venjulega hæst sem halda ekki lagi"


Vinir mínir

Picture 019

Picture 021

 

 

 

 

 

Krumminn á skjánum,

kallar hann inn.

Gef mér bita af borði þínu,

bóndi minn !

 

Sá sem stelur eggi , er vís til að stela líka hesti


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband