Uxahali...

uxah 

Það er búinn að vera draumur hjá mér í mörg ár að elda uxahala (hali af nauti). Þar sem ég er stödd í Bónus í haust rek ég augun í frosna uxahala og var ég fljót að grípa eina pakkningu. Í morgun byrja ég svo að elda, uxahalar þurfa tveggja tíma suðu og ætlaði ég að hálfelda herlegheitin fyrir hádegi því ég ætlaði að skreppa í sveitina í dag sem ég og gerði. Minntist ég á halann minn þar og sá ég að bóndanum hryllti við.

Jæja þegar heim var komið var hafist handa við áframhaldandi eldamennsku og ætlunin að elda uxahalasúpu en úr varð uxahalaragú. Ég verð að viðurkenna að ég settist til borðs með hálfgerðum hryllingi og ekki fannst mínum manni þetta gott. Lofaði ég honum að þetta skyldi ég aldrei gera aftur. Mér er eiginlega hálf illt eða svona með ógleði.

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Létt er lausum hala að veifa


Jólabækurnar mínar ?

 í manns munni (Small)

 kvöldlag við kirkjudyr (Small)

Ætla að dobla bóndann til að gefa mér þessar bækur í jólagjöf "Í manns munni", "Kvöldlag við kirkjudyr", og einnig þá nýjust "Yfir húmsins haf".

http://www.thingeyri.is/pistlar/detail_pistlar.asp?NewsID=138

 Yfir húmsins haf eftir síra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Þetta er þriðja bókin sem Vestfirska forlagið gefur út eftir síra Ágúst þar sem segir frá kirkjum og kirkjustöðum á Vestfjörðum í stuttu og hnitmiðuðu máli. Í manns munni fjallar um staðina í Barðastrandarsýslu og Kvöldlag við kirkjudyr segir frá Vestur-Ísafjarðasýslu. Sú nýjasta, Yfir húmsins haf fjallar um kirkjur og staði í Norður-Ísafjarðarsýslu. Alls eru þetta 43 kirkjusetur hér vestra sem fróðleiks- og sagnapresturinn segir frá með sínu forna lagi, en fáir ef nokkrir núlifandi fræðimenn skrifa slíkan texta sem síra Ágúst Sigurðsson.
Um 500 ljósmyndir eru í þessari vestfirsku kirkjusögu og er þó Strandasýslan eftir. Margar þeirra hafa aldrei birst áður og kennir þar margra grasa. Er ólíklegt að nokkurs staðar séu saman komnar jafn margar frásagnir í myndum af vestfirskum kirkjum, prestum, eiginkonum þeirra og niðjum, leikmönnum, kirkjulegu starfi og athöfnum sem í umræddum bókum Möðruvellingsins. Myndasöfnun hans úr vestfirskum prestaköllum er með ólíkindum og lýsir miklum dugnaði og þreki fræðiklerksins. En síra Ágúst á líka hauk í horni þar sem er eiginkona hans. Guðrún L. Ásgeirsdóttir, sem styður hann með ráðum og dáð.
Verð: 2.900,- kr.

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Sérviska er ódýrasta uppbótin fyrir skapfestu


Völubeinið

 Picture 011 (Small)

Fyrir einhverjum árum eignaðist ég völubein, síðan þá hef ég spurt marga hvar nákvæmlega  í kindinni beinið væri, en enginn hefur haft svar við því. Í gærkveldi rakst hér inn ungur bóndi og barst þetta í tal, hvar völubeinið væri. Hann velti beininu smá stund fyrir sér og spurði svo, ertu viss um að þetta bein sé úr kind? held að hann hafi verið að grínast. Hann sagðist nú aldrei hafa velt þessu fyrir sér en sagði svo, ég man þegar maður hæklaði of hátt þá var sagt að maður væri völuþjófur. Þar með upplýstist leyndarmálið um völubeinið.

Völu - þjófur KK

fláningsmaður sem lætur völuna fylgja fótleggnum.

 Veröld/Fólk | mbl.is | 13.10.2006 | 11:06

Nýtt íslenskt leikfang, Völuskrín, sett á markað

Nýtt leikfang verður kynnt til sögunnar í dag. Leikfangið heitir Völuskrín og mun iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, veita fyrsta eintakinu viðtöku.

Leikfangið er leikfangaskrín sem heitir Völuskrín, sem er vísun í þá hirslu sem börn geymdu gersemar sínar í áður fyrr. Völuskrínið inniheldur eftirgerðir þeirra dýrabeina sem notuð voru í þá daga til að búa til hugarheim alvöru sveitalífs þar sem tábein voru kindur, völubein voru kýr og kjálkar voru hestar. Í skríninu eru eftirgerðir þrettán beina ásamt karli og kerlingu. Völuskrínið sjálft er lítill kassi með fallegri nýtískulegri hönnum sem getur þjónað margs konar tilgangi við að aðstoða byggingu þess hugarheims sem nútímabörn munu búa sér til úr þessum aldna íslenska efnivið, að því er segir í fréttatilkynningu. Það verða ekki einungis íslensk börn sem fá að kynnast leyndardómum beinanna þar sem Völuskrínið er einnig markaðssett fyrir erlenda ferðamenn. Það er gert í ljósi þess að þörf er á íslenskum minjagripum fyrir börn og með það fyrir augum eru leiðbeiningar leikfangsins, með útskýringum á hinum gamla íslenska arfi, á fimm tungumálum.

Völuskrínið verður komið í helstu leikfanga- og ferðamannaverslanir mánudaginn 16. október nk.

Hugmyndasmiður og eigandi Völuskríns er Þórey Vilhjálmsdóttir viðskiptafræðingur. Að þróuninni komu einnig sagnfræðingur og ýmsir hönnuðir, en Lóa Auðunsdóttir vöruhönnuður hefur haft yfirumsjón með hönnuninni.

Verkefnið hlaut styrk úr verkefninu „Átak til atvinnusköpunar” frá Iðnaðarráðuneytinu árin 2004 – 2005.

´´´´´´´´´´´´´´´´´´´

 Einn hreppir það annar sleppir


Neyðarkallinn er kona

 Picture 007 

Mér heyrðist þetta líka, að það væri verið að auglýsa Neyðarkallinn og allir tala um kallinn, þar til ég keypti einn og sá að þetta var kona. Það var verið að auglýsa Neyðarkallið. 

Fyrirsögn í Mbl. í dag

"Neyðarkallið tryggði nærveru"

***************************************** 

"Margar hendur vinna létt verk"


Komin í samband

 Voss

 http://www.vossnow.net/

Til hamingju elsku frænka og vinkona, með að vera komin í samband við umheiminn og þá sérstaklega mig. Ég skal alveg viðurkenna að ég er stundum (oft) löt að skrifa bréf.

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Maður elskar og dáir þann sem getur brosað í sorg, öðlast styrk í örvæntingu og safnað kjarki með íhugun


Fyrstu rjúpurnar komnar í hús

Picture 005

Veiddar í Fjarðarhornslandi

 Að rembast eins og rjúpan við staurinn

 


Sviðamessa og 1. dagur í rjúpu

 

 

 Í öndverðu fögnuðu menn vetri skömmu eftir sláturtíð og gæddu sér ótæpilega á því nýmeti sem þá féll til en sjaldnast var mikið um á veturna. Eftir að kirkjunni óx fiskur um hrygg færðist veislan yfir á allraheilagramessu sem af þeim sökum fékk auknefnið sviðamessa.

visindavefur.is

Elstu rituðu heimildir um rjúpnaveiði á Íslandi, eru að finna í Fljótsdælasögu, eða Droplaugasonar-sögu. Veiðimennirnir Droplaugarsynir, þeir Helgi og Grímur voru þá vart af barnsaldri, og bjuggu hjá móður sinni, Droplaugu, á Arnheiðarstöðum í Fljótsdal. Ekki verður gerð grein fyrir því hér, hver aðdragandinn var vegna ferðar þeirra bræðra út í Mýnes, til að drepa karl nokkurn sem Þorgrímur hét, kallaður tordýfill. Í Ausfirðingasögu Íslendingasagnaútgáfunnar sem Guðni Jónsson bjó til prentunar, og gefin var út 1947, er eins og rjúpnaveiðiferð þeirra hafi verið yfirskyn til þess að skreppa út í Mýnes að kála karlinum.  Þeir voru komnir út í Eyvindará til Gróu frændkonu sinnar:

   En um morguninn stóðu þeir snemma upp. Gróa segir, hvat þeir skyldi þá. Þeir segja: "Rjúpur skulum vér veiða." Þeir fóru í Mýnes.--- Ok í því, er hann (Þorgrímur) vildi á bak (hrossi) hlaupa, skaut Helgi spjóti á honum miðjum, ok fell Þorgrímur þegar dauðr niðr.--- þeir fóru ok kómu aftr til Eyvindarár. Gróa spyrr, hvat þeir veiddi. Helgi segir: "Vit höfum veitt tordýfil einn."---

                                                                                   (droplaugarsona-saga, G.J. 1947, bls. 128-129.)

   (")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")(")

Besta leiðin til að standa við loforð er að gefa engin


Safnað fyrir vestfirskum vegum


fr4728fec90f268

Mynd Marino Thorlacius - Alþingishúsið við vestfirskan veg

http://www.patreksfjordur.is/



Ást

Sá sem verður ástfanginn af sjálfum sér fær engan meðbiðil


Kvöldsögur Önnu Kristine

friendship

Skora á fólk að hlusta á viðtalið við Óla Geir og Þóreyju.

Yndisleg vinátta

http://www.bylgjan.is/?PageID=2181

 Því hreinni sem hugur mannsins er þeim mun samkvæmari er hann sjálfum sér


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband