8.12.2007 | 00:00
8. des 1980. Gleymi aldrei þessum afmælisdegi mínum.
Imagine there's no heaven
It's easy if you try
No hell below us
Above us only sky
Imagine all the people
Living for today...
Imagine there's no countries
It isn't hard to do
Nothing to kill or die for
And no religion too
Imagine all the people
Living life in peace...
You may say I'm a dreamer
But I'm not the only one
I hope someday you'll join us
And the world will be as one
Imagine no possessions
I wonder if you can
No need for greed or hunger
A brotherhood of man
Imagine all the people
Sharing all the world...
You may say I'm a dreamer
But I'm not the only one
I hope someday you'll join us
And the world will live as one
Myndasmiður Jón Reykdal
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Varaðu þig á mönnum sem vita hvað þú ætlar að segja
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2007 | 09:45
Ekki fyrir alla
Skerðing tryggingabóta aldraðra og öryrkja vegna tekna maka verður afnumin á næsta ári og frítekjumark þeirra hækkað úr 25 þúsund krónum í hundrað þúsund á næsta ári. Þetta er meðal aðgerða sem ríkisstjórnin kynnti í dag og kosta munu fimm milljarða króna á ári.
Þetta kemur makalausum ekki til góða s.s. skerðing tryggingabóta vegna maka. Frítekjumarkið ekki heldur hjá þeim sem ekki geta verið úti á vinnumarkaðinum.
Það njóta s.s. ekki allir góðs af nýjasta útspili ríkisstjórnarinnar.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Það skiptir ekki öllu hvar við eigum heima, svo lengi sem við eigum heima þar sem við erum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2007 | 08:16
Sudoku
Mundi alveg þiggja eina svona í jólagjöf.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Það er tvennt sem maður verður að sætta sig við ef lífið á ekki að verða óbærilegt; framrás tímans og óréttlæti mannanna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2007 | 08:30
Sólin og jólin
Nú styttist í að sólin hverfi bak við fjöllin, sennilega næst síðast dagurinn sem hún sést hér þar til 6. jan. 2008. Þá kveikir maður bara á dagljósaperunni (þunglyndisperunni eins og ég kalla hana). Það birtir nú heldur betur til um helgina, en þá ætla ungarnir að skreppa aðeins heim í hreiðrið til mömmu gömlu sem er búin að vera á fullu undanfarna daga að útbúa eittvað til að tína í goggana sína. Þá ætlum við gömlu að bregða okkur í höfuðborgina um jólin og er það í fyrsta skipti sem við erum ekki heima um hátíðirnar fyrir utan ein jól fyrir 40 árum sem ég var ekki heima, en þá fæddist lítið jólabarn sem við ætlum að fagna með 22. des.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Þess verður getið sem gert er
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 22:01
visir.is
Danska verslanakeðjan Irma hefur skilað af sendingu af rauðvíni frá víngarði Hinriks danaprins , vegna þess að ómögulegt var að fá tappann úr flöskunni. Þetta er gert kjölfar kvartana frá fjölda viðskiptavina keðjunnar, sem gáfust upp á því að ná í hina konunglegu dropa.
,,Við fengum fjölda kvartana yfir því að tappinn væri svo fastur í flöskunni að hann brotnaði þegar fólk reyndi að draga hann út. Viðskiptavinirnir enduðu annað hvort með korkrestar í víninu sínu, eða gátu alls ekki náð tappanum úr. Við ákvaðum við að við myndum ekki bjóða viðskiptavinunum upp á að þurfa að hringla með þettga og innkölluðum sendinguna." sagði talsmaður Irma við B.T. blaðið.
Prins Hinrik hefur nú fengið flöskurnar allar sendar aftur á vínekruna sína, þar sem handsterkt fólk mun væntanlega dunda sér við að reyna að opna þær. ,,Það er ekkert að víninu. Þessvegna er sendingin á leið aftur til Cayx , þar sem nýjir tappar verða settir í flöskurnar." sagði starfsmaður vínekrunnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2007 | 10:20
Jólatréð í ár
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2007 | 00:21
Frapin Cuvee 1888
Kr. 298.140.-
Var beðin um að leggja fram óskalista fyrir afmælið. Á bara allt milli himins og jarðar, nema bara ekki svona. Drekk þetta reyndar ekki.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Vín inn, vit út
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2007 | 13:09
Á degi íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu
vefst mér óðara um tönn
með fyrstu morgunskímunni.
Kaldur gustur málfræðinnar
ásamt napurri stafsetningarreglu
mæta mér í útidyrunum.
En trefill orðanna
er mér eðlislægur
ásamt hatti gæsalappa
og upphrópana.
Augnablik nem ég staðar
á þröskuldi þátíðar.
En með lýsingarhátt í hávegum
stekk ég út mót degi íslenskrar tungu,
Því áfram og upp,
það er Málið.
Gústa Gústafsson skólastjóri Grunnskóla Vesturbyggðar
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Það sem mörg okkar þarfnast mest er einhver sem fær okkur til að leggja af mörkum það sem við getum
Bloggar | Breytt 17.11.2007 kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 19:02
Eignaðist bók í gær...
sem aldrei hefur verið til á mínu heimili.
Hver skrifaði Biblíuna og hvernig vissi hún eða hann allt um söguna?
Spyrjandi
Hólmfríður Víkingsdóttir, f. 1994
Svar
Ritið sem við köllum Biblíu er í raun margar bækur enda þýðir orðið biblía bækur. Við skiptum Biblíunni oftast í tvennt og tölum um Gamla testamentið og Nýja testamentið. Í Gamla testamentinu eru 39 rit og það er upprunalega ritað að mestu á hebresku. Í Nýja testamentinu eru 27 rit og það var fyrst ritað á grísku.Bækur Biblíunnar voru skrifaðar á löngum tíma, Gamla testamentið frá árunum 1300-200 f. Kr. og Nýja testamentið var skrifað á síðari hluta fyrstu aldar e. Kr. Bókunum var síðan safnað saman í eitt safnrit og endanleg gerð þess er frá því um 400 e. Kr. Ýmis rit urðu þá útundan og þóttu ekki tæk í Biblíuna. Þau kallst apókrýfar bækur. Tómasarguðspjall er til dæmis eitt af apókrýfum ritum Nýja testamentisins og hægt er að lesa um það í svari við spurningunni Hvar get ég séð eða lesið Tómasarguðspjall? Um apókrýfar bækur er hægt að lesa nánar í ítarlegu svari við spurningunni Hvað eru apókrýfar bækur Biblíunnar?
Mynd: Liam's Pictures from Old Books
Af vísindavefnum
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Sjóndeildarhringur hvers manns takmarkast einungis af hugarflugi hans
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2007 | 21:21
Álftarungi

Frétt í sjóvarpinu í kvöld um álftarunga sem er í fóstri á Selalæk í Rangárþingi vakti upp hjá mér minningar um unga sem var í fóstri á mínu heimili fyrir sjö árum. Fram kom í fréttinni að honum væri gefin hundamatur og mél.
Tilurð okkar unga var sú að sonurinn kom einn daginn heim með álftaregg og vafði því inn í peysuna sína og setti á ofninn í herberginu sínu, öðru hvoru var eggið bleytt, bara sett í eldhúsvaskinn. Átti ég nú ekki von á að þetta tækist hjá pilti. Eftir tæplega fjórar vikur skreið ungi úr egginu og mikið rosalega var hann fallegur. Nú hófst vinna fyrir alvöru, útbúinn var kassi með ljósaperu til að halda á honum hita, þá var pantað að mig minnir kraftfóður sem hænuungum er gefið, við vorum hrædd um að hann myndi deyja úr hungri hjá okkur. Farið var út, reytt gras og klippt niður og þetta át hann ásamt hænuungafóðrinu, og hann át allan liðlangan daginn meðan einhver gaf honum. Á tveimur vikum þyngdist hann um 300 gr. næstu viku um 330 g. Einu sinni á dag var látið renna í baðkerið, gras klippt út í og þar synti hann og át. Fimm vikna gamall var unginn orðinn 1.100 gr. og átti þá orðið erfitt með að ganga. Nú varð að gera eitthvað í málunum og var unganum komið í sveit þar sem hann gæti verið í náttúrulegu umhverfi og komist í vatn að synda. Þar lifði hann í viku.
Mistökin hjá okkur voru held ég, að hann fékk of mikið að borða. Þess vegna sló mig svolítið fréttin um álftarungann á Selalæk sem er lítið farinn að fljúga, er hann ekki bara of þungur?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)