5.1.2008 | 14:22
Hún er þarna einhvers staðar
Búin að baka pönnsurnar. Smá forskot á sæluna, húsbóndinn á nefnilega afmæli í dag.
**************************************************
Þeir sem eru duglegir við að afsaka sig, duga til lítils annars
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2008 | 09:31
Snýst um rétt minn en ekki peningana
Aðalmálið hjá mér er að fá viðurkennt að ég eigi rétt á þessari aðstoð. Þetta snýst alls ekki um peninga," segir Jóhanna Dagmar Magnúsdóttir, einhent kona sem fær handsnyrtingu ekki endurgreidda hjá Tryggingastofnun.
Til dæmis skilaði ég á hverju ári vottorði um að ég væri einhent til að halda bótunum. Loks skrifaði læknirinn upp á að það væri mjög ólíklegt að höndin myndi vaxa á aftur," segir Edda, sem aðspurð kveðst fara afar sjaldan í handsnyrtingu á stofu. Fyrir nokkrum árum var ég látin borga fullt verð þótt ég bæði um að fá að borga hálft gjald. Það var dálítið spaugilegt."
http://www.visir.is/article/20080105/FRETTIR01/101050203
En hvað ég kannast við álíka hjá Tr.
Annar fóturinn á mér er þremur cm. styttri en hinn og í hvert skipti sem ég þurfti upphækkun undir nýja skó varð ég að fá vottorð frá lækni sem þurfti svo að fara fyrir allskonar nefndir og ráð, gat tekið nokkrar vikur. Eitthvað er þetta orðið breytt í dag því þegar ég kem í Stoð þarf ég bara að skrifa undir beiðni sem þeir senda í Tr. Kannski hefur einhver uppgötvað að fóturinn mundi ekki vaxa til jafns við hinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2008 | 22:57
Nýjasta græjan prófuð
Í kvöld var nýjasta heimilisgræjan prófuð. Þegar við vorum í höfuðstaðnum um jólin datt húsbóndanum í hug að kaupa sér uppþvottavél. Þetta er náttúrulega smá bilun, við búin að standa við uppvaskið yfir þrjátíu ár meðan ungarnir voru heima svo þegar við erum orðin tvö þá er keypt uppþvottavél. Það er nú smá vandamál í þessu, það tekur hátt í viku að safna í vélina og ekki einu sinni til svo margir matardiskar nema nota sparistellið, höfum ekkert þurft fleiri diska þar sem vaskað var upp tvisvar á dag, mitt mottó hefur verið að safna ekki of miklu leirtaui í skápana bara til að hafa það þar. Ég kom með uppástungu til að leysa þetta mál, borða fyrst af matardiskunum, síðan af meðdiskunum og enda á undirskálunum, þar af leiðandi færu matarskammtarnir alltaf minnkandi eftir því sem liði á vikuna, því aldrei að fá sér tvisvar á diskinn.
Það er ekki öll vitleysan eins
Ég var nú búin að veita honum uppvöskunarorðuna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2008 | 14:22
Styttist í að hún láti sjá sig
********************************************************
Enginn mundi hlusta á þig ef hann vissi ekki að hann kæmist að næst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.12.2007 | 15:13
Gleðilegt nýtt ár
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Eins og konan er komin af manninum, svo er maðurinn fæddur af konunni, en allt er frá Guði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2007 | 13:45
Bilaður Patrol
Átti nú alltaf eftir að skrifa smá færslu með þessum myndum. 21. des var yngsti sonurinn á leið frá Sauðárkróki til Reykjavíkur. Þegar hann var staddur í Hrútafirðinum hrundi vélin í bílnum sem hann var nýbúinn að kaupa eða fyrir tæplega mánuði síðan. Miðsonurinn fór norður um kvöldið og sótti bróður sinn. Á þorláksmessu fóru þeir feðgar á Selfoss að sækja kerru svo hægt væri að sækja bílinn sem þeir og gerðu á jóladag. Gekk þetta vel hjá þeim loks þegar búið var að koma bílnum á kerruna því annaðhvort var bíllinn of breiður eða kerran of mjó eins og sjá má á myndunum
Við áttum góð jól í borginni, vorum í íbúð frá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, á sjöundu hæð. En það var nú ansi gott að koma heim aftur. Átti ekki alveg við okkur sveitafólkið þessi örtröð sem var allstaðar, hvort sem var í búðunum eða götum borgarinnar. Smá dæmi um sveitamanninn í okkur. Þriðja í jólum ákváðum við að skreppa í nýju Hagkaupsbúðina í Holtagörðum. Þegar inn var komið var ekki margt um manninn, sáum aðallega öryggisverði, en það sem blasti við okkur var búð svo langt sem augað eygði. Þetta var alveg nóg fyrir okkur, við eiginlega bökkuðum út.
Bloggar | Breytt 8.1.2008 kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2007 | 14:00
Óhróður um skötuunnendur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2007 | 18:50
Reynir hjá Vegagerðinni á Höfn
Þannig er að sonur okkar er á leið austan af fjörðum til R-víkur á dráttarbíl. Þegar hann er í Hvalsnesskriðum hringir hann hingað heim og biður okkur að kíkja á vef Vegagerðarinnar og athuga með færð yfir Almannaskarð (ekki undir, farmurinn var það hár ). Þar var ekkert að finna um færðina yfir skarðið svo pabbinn hringdi í vegagerðina og spurðist fyrir og var honum gefið samband við Reyni hjá Vegagerðinni á Höfn. Hann vissi ekki um færðina en segir, ég skal bara skjótast upp eftir og athuga, hringdu í mig eftir 20 mínútur. Það reyndist vel fært, engin hálka en var að frysta.
Reynir, þú færð hrós frá okkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2007 | 15:11
Páll Óskar og Monika
Flottir tónleikar í fallegri kirkju
Með bæninni kemur ljósið.
Ljóð: Páll Óskar/Brynhildur Björnsdóttir
Þegar næðir í mínu hjarta og í huga mér engin ró
og ég þrái að sjá hið bjarta sem að áður í mér bjó
þá er lausnin alltaf nálæg, ef um hana´í auðmýkt bið
og með bæninni kemur ljósið og í ljósinu finn ég frið.
Ó, svo dapur er dagur vaknar, dægurþrasið svo fjarri er.
Mundu þegar þú sárast saknar og sólin skín hvergi nærri þér
að í bæn er falinn máttur er þig magnar þúsundfalt
því með bæninni kemur ljósið og í ljósinu lagast allt.
Ég vil mæta þessum degi, fagna öllu sem fyrir ber
og ég bið þess að ég megi njóta alls sem hann gefur mér.
Ef ég bið á hverjum degi, hef ég von sem aldrei deyr
því með bæninni kemur ljósið og í myrkri ég geng ei meir.
Bloggar | Breytt 15.12.2007 kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2007 | 11:09
Ungarnir flognir
Þá eru ungarnir flognir burtu nema sá yngsti sem fer á morgun. Það er heldur betur búið að vera kátt í hreiðrinu um helgina, vona að allir séu ánægðir með það sem ég hafði fram að færa. Ég er allavega ánægð með allar þær stórkostlegu afmælisgjafir sem ég fékk. T.d. skrifborðsstól, peninga, kaffivél, dúk, lampa, glös, veski, perlaðar bjöllur og margt, margt fleira. Vil ég hér með þakka öllum innilega fyrir mig, þetta var yndisleg helgi.
Nú þarf ég að fara að undirbúa Reykjavíkurferðina 20. des. Vona bara að veðrið verði til friðs, það er ekki nema sex fjallvegir sem við þurfum að fara yfir. Siggi stormur var að spá rauðum jólum og vona ég bara að það haldi, þó gaman sé að hafa hvít jól.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Það eru til milljón leiðir til að eyða tímanum, en ekki ein til að endurheimta hann
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)