Bílastæðið mokað

Picture 012

Þetta hefur ekki gerst í einhver ár að þurft hefur að moka bílastæðið


Þorrablót

 25 Hrútspungur,bringa,sviðasulta

Þorrablót, já ekkert jafnast á við þorrablót   

að þenja kviðinn út af hrútspungum,

gallsúrum

þeir virka vel, neðan við nafla á þér

og sultuð svið

súrsaðar bringur, brauð og barinn harðfiskur

þú verður algjört æði af þessu lúxusfæði

ef þú borðar af því nóg.

(lag.sveitaball)

Var á þorrablóti á laugardaginn sem tókst í alla staði vel. Var reyndar í þorrablótsnefnd, en í henni voru 15 konur. Síðastliðið haust var byrjað á því að svíða hrútspunga og hausa í sviðasultu og sett í súr, ásamt bringukollum og lundaböggum? Um miðjan janúar voru rúgkökur og hveitikökur bakaðar.

Síðasta vika fór öll í undirbúnig á mat og skemmtiefni. Soðið var hangikjöt, búin til ný sviðasulta þá voru soðnar rófur í stöppu og kartöflur í mús. Annað sem var á boðstólum var harðfiskur, smjör og hákarl.

Ég setti spurningarmerki við lundabaggana, kann ekki alveg við nafnið á þessum nýtísku lundaböggum, upprúlluðum slögum. Ég man þegar mamma var að búa til lundabagga þá var notað í þá, hjörtu, hálsæðar, gollurshús og ristlamör og að síðustu var þindin saumuð utan um. Þetta þótti manni algert lostæti eða þá úttroðin vélindu, ég tala nú ekki um sviðnar lappir. Í dag er kvartað yfir því að unga fólkið borði ekki sláturafurðir. Er það ekki vegna þess að það hefur ekki fengið að kynnast þessu þar sem mjög erfitt er að nálgast þessar afurðir af hræðslu við eitthvert smit. Það verður að fara með þetta eins og mannsmorð ef maður nælir sér einhversstaðar í óverkaða punga eða lappir.

18

Vil ég að lokum þakka öllum konunum og öllu þeim sem aðstoðuðu okkur við undirbúnig þorrablótsins.

1 Dabba,Gróa, Fanney,Arnheiður (Small)5 (Small)6 Þórey, Regína.Brynja, Gunnhildur,Fanney (Small)20 (Small)21 (Small)23 (Small)24 Gróa,Dabba,Karólína (Small)26 (Small)29 Karólína,Brynja (Small)30 Dabba,Margrét (Small)31 Baddýog Margrét gera klárt á barnum32 Baddý setur í kælinn

33 Baddý,Nína og Þórey í pásu


Jón kom 23. janúar

 jÓN FORSETI

 Ljósmyndari: Magnús Ólafsson Eigandi: Ljósmyndasafn Reykjavíkur

 Tímamót urðu í janúar 1907 í útgerðarsögu Íslendinga þegar Jón forseti, nýsmíðaður 230 brúttólesta togari, kom til Reykjavíkur. Jón forseti var eign útgerðarfélagsins Alliance og var fyrsti úthafstogarinn sem smíðaður var sérstaklega fyrir Íslendinga. Veiðarnar gengu vel og mun Jón forseti hafa borgað sig upp á fáeinum árum. Síðar þetta sama ár kom togarinn Marz til hafnar á vegum Íslandsfélagsins hf. Þar með var togaraútgerð Íslendinga komin á fulla ferð. Rúmum tuttugu árum eftir að Jón forseti kom til landsins strandaði togarinn í illviðri við Stafnes. Af 25 manna áhöfn skipsins björguðust 10 en 15 fórust.  Þetta sjóslys varð til þess að mikil hreyfing komst á undirbúning að stofnun Slysavarnafélags Íslands. Félagið var stofnað skömmu síðar og síðan björgunarsveitir á vegum þess, fyrst í Sandgerði og síðan í Grindavík.


Örverpið...

Happy_Birthday

Til hamingju með daginn.


22. jan 1983

 ljósmynd Árdís og Harpa

                                               Ljósm. Árdís og Harpa

Minnismerki um þá sem létust í krapaflóði 22. jan 1983

 Íbúar Vatneyrar voru lengst af bændur sem stunduðu sjósókn í hjáverkum, en á síðasta hluta 19. aldar tóku fyrstu þurrabúðirnar að rísa á eyrinni. Var það fyrsti vísirinn að þorpinu, en í lok síðustu aldar var Vatneyri enn fámenn byggð. Þá keypti Markús Snæbjörnsson úr Dufansdal Geirseyri og hóf fyrstur bænda þilskipaútgerð. Hann var umsvifamikill og rak meðal annars útflutningsverslun og byggði Gamla Steinhúsið árið 1874, fyrsta steinhús á Vestfjörðum.

Aukin umsvif í verslunarrekstri og útgerð drógu að sér fólk úr sveitunum sem settist þar að. Togaraútgerð sem hófst 1925 á vegum Ólafs Jóhannessonar verslunarstjóra, gerði staðinn að einum myndarlegasta útgerðarstað á Vestfjörðum. Í dag eru íbúarnir vel á sjöunda hundrað og hafa flestir atvinnu af fiskvinnslu og útgerð sem fyrr. Einnig er talsvert um þjónustu og iðnað. Patreksfjörður er höfuðstaður Barðastrandarsýslu, þar hafa bæði sýslumaður og héraðslæknir aðsetur.

Bænhús mun fyrr á öldum hafa staðið á Geirseyri, en við upphaf 20. aldar var reist þar kirkja sem var vígð árið 1907. Á Patreksfirði eru fjögur minnismerki og þrjú þeirra um sjómenn - franska og enska og síðan minnismerki sjómanna. Fjórða minnismerkið er um þá sem létust í krapaflóði 1983.

Patró


Jón úr Vör

 Jón úr Vör (Large) (Medium) 

 21.01.1917 - 04.03.2000

ÉG ER SVONA STÓR


Enginn slítur þau bönd,
       sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín
       fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn,
       en þorpið fer með þér alla leið.

Frá þeirri stundu,
       er þú stóðst við móðurkné og sagðir:
       Ég er svona stór.
       ert þú samningi bundinn.

Þú stendur alla ævi síðan fyrir augliti heimsins.
       Lítill kútur, sem teygir hönd yfir höfuð sér og heyrir
       blíðmæli brosandi móður:
       Ertu svona stór?

Þú færð aldrei sigrað þinn fæðingarhrepp,
       stjúpmóðurauga hans vakir yfir þér alla stund.
       Með meinfýsnum skilningi tekur hann ósigrum
       þínum, afrekum þínum með sjálfsögðu stolti.
       Hann ann þér á sinn hátt, en ok hans hvílir á herðum þér.

Og loks, er þú hefur unnið allan heiminn, vaknar þú einn
morgun í ókunnri borg, þar sem áður var þorpið, gamal-
menni við gröf móður þinnar. Og þú segir:
       Ég er svona stór.
              En það svarar þér enginn.

 

 


17. janúar 1914

eimskip 

Hf. Eimskipafélag Íslands var stofnað árið 1914. Félagið var fyrsta skipafélag á Íslandi og stofnendur þess voru rúmlega 14.000 sem á þeim tíma var meira en 15% þjóðarinnar. Siglingar hófust árið 1915 og Gullfoss var fyrsta skip félagsins
Í fyrstu voru skip Eimskipafélagsins aðeins í siglingum milli Íslands og Danmerkur og meðfram ströndum Íslands. Á árum fyrri heimsstyrjaldar, þegar siglingaleiðin til Evrópu lokaðist, var um tíma siglt til Bandaríkjanna. Eftir að friður komst á voru hafnar að nýju siglingar til Danmerkur með viðkomu í Leith í Skotlandi. Á næstu árum sigldu skipin jafnframt til borganna Hull og Lundúna á Englandi, Hamborgar í Þýskalandi og Antwerpen í Belgíu.


Á hraða snigilsins

Internet

Nú er þolinmæðin mín við það að bresta sem gerist nú ekki oft. Nú er það Internetið sem er að pirra mig, ekki segja að tölvan mín sé biluð, hún getur ekki verið biluð öðru hvoru, heldur er það hraðinn á Netinu eða hvað þetta nú heitir, kann ekki þetta tæknimál yfir tölvudótið. Nú er það þannig að Netið nær ekki hraða snigilsins og ekki hægt að lesa blöðin. Aldrei hægt að lesa Moggann eða 24 stundir nema "Save Target As..." Yfirleitt hefur verið hægt að lesa Fréttablaðið án vandræða en nú er sama sagan þar. Svo er maður að borga nokkra þúsundkalla á mánuði og hefur oft ekkert nema leiðindi og pirring af þessu.

 


Fallegur himinn

Picture 008

Haddý, ef þú stækkar myndina sérðu ljósið.

Svo er bara spurning hvenær við yfirtökum staðinn.


Afmælisdagur kóngsins


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband