Safna fé til styrktar Færeyingum í nauð

 skálavíkSkalavikSkálavík 2

Gleymum því ekki að Færeyingar studdu dyggilega við bakið á okkur eftir flóðin á Patreksfirð, Súðavík og Flateyri

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0565-14-607914, kt. 270366-3419. Reikningurinn verður opinn til 14. mars næstkomandi.

Þeir sem standa að fjársöfnuninni til styrktar sjávarþorpinu Skálavík eru Niels J. Erlingsson, Árni Hilmarsson og Fjalar Freyr Einarsson.

 

http://www.leit.is/thjonsla/go.aspx?url=http://www.visir.is&mid=255


Saumastaðan

Picture 052 (WinCE)

Ekki mikið saumað um helgina


Á hraða snigilsins

 frúin

 Nú get ég farið út að ganga með mitt gæludýr á mínum gönguhraða.


Þetta er sko þjónusta í lagi

Í morgun datt inn um bréfalúguna pakki með garni sem ég hafði pantað frá Englandi 17. febr.

Thank you for shopping at LeisureCraft Tewkesbury .
We have received and are processing the following order:

******************************************************
Order Number: GE845000001031
Order Date:   17 February 2008 17:44 GMT

Picture 048 (Small)Picture 050 (Small)

Þetta kallar maður nú þjónustu og alla leið vestur á firði eða verðmismunurinn maður minn.


Handavinnan

958919503958919824958920009958920222

Þessar ætla ég að sauma næst, er reyndar byrjuð á einni.

Picture 047 (Small)

Þessa var ég að klára, búin að vera allt og lengi með hana, bara gripið í hana öðru hvoru.


Kvöldmaturinn

Kjöt með grænmeti (frikasse): 
 1/2 kg.
1/2 kg.
1/2 kg.
1 l.
2 tesk.
40 gr.
40 gr.
1 tesk.
lambakjöt
hvítkál
gulrætur eða gulrófur
vatn
salt
smjörlíki
hveiti
söxuð steinselja
 
 Beztur er frampartur af lamba- eða kálfakjöti. Kjötið er smáhöggvið, þvegið úr köldu vatni, heitu vatni hellt á það. Látið ofan í soðið vatn með salti. Þegar sýður, er froðan veidd vel ofan af. Soðið í 15 mín. Gulrófurnar og hvítkálið hreinsað og brytjað. Látið í pottinn og soðið í 20-30 mín. Jafningur nr.2 er búinn til. Látinn út í pottinn og hrært gætilega í, þar til sýður, því kjötið og grænmetið má ekki fara í sundur. Saltað eftir vild og saxaðri steinselju hrært saman við. Hellt upp á fat.
Aths. Hægt er að nota minna af kjötinu og þá meira af grænmetinu. Annars má nota hvaða grænmeti sem er í þennan rétt; sérstaklega er gott að hafa grænar baunir í hann. Baunirnar eru þá settar út í sósuna.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

Fékk þetta sent í dag

  2008

Til allra vina og vandamanna sem sendu mér tölvupóst árið 2007 með loforðum um heppni og hamingju ef ég sendi póstinn áfram...

Þetta virkaði ekki !

Vinsamlegast sendið mér bara peninga, bjór eða súkkulaði árið

2008

Takk fyrir


Súrsað hvalspik.

  Picture 039

Á árunum fyrir hvalveiðibann var súr hvalur oft á borðum og þótti herramannsmatur og var að mig minnir ekki svo óhóflega dýr. Í dag er þetta rándýr vara og svo er annað, bitarnir sem mér áskotnuðust á dögunum (meðf.sýnishorn) helmingurinn var kjöt sem fyrir minn smekk er ekki gott, þannig að helmingurinn af þessum bitum fór í ruslið. Þetta var ekki svona fyrir ca. 19 árum, þá keypti maður bara spik.


Kvöl

 Patró

Kristín Völundardóttir lögreglustjóri ætti að láta ritskoða hjá sér minnismiðann áður en hún kemur í útsendingu hjá sjónvarpinu. Hún talar um byggð fyrir neðan Stakkagil á Patreksfirði, Þetta gil heitir Stekkagil eða Geirseyrargil. Þá talaði hún um Búðargil í Búðardal. Búðargil er á Bíldudal og Búðardalur er ekki á sunnanverðum Vestfjörðum.

Þetta er svipað og þegar fólk talar um Barðaströnd allt suður í Bjarkalund, sem pirrar okkur svolítið hér fyrir vestan.

 Vestfirðir

 Barðaströnd er heiti á strandlengju á sunnanverðum VestfjörðumBreiðafirði á milli Vatnsfjarðar og Sigluneshlíðar

 


Ullarsteinar (mýll)

 Ullarkúla (Small)

Rakst á bloggsíðu þar sem var mynd af ullarsteinum, hvítum og grænum, og einhver spurði,

"Ullarsteinar ??? hvað koma þeir af lömbum?  Það vill svo til að ég á ullarstein eða kúlu.

Fann þetta í orðabók:

mýll mýls, mýlar KK

• ullarlagður sem kind étur og verður harður, banvænn hnútur í innyflum hennar


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband