14.8.2009 | 08:07
Sumarhús
Norður á Siglufirði er búið að reisa þetta hús á horni Aðalgötu og Norðurgötu og það er til sölu.
http://saeluhus.com/frettir/2009/07/11/nr/3
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 05:06
† Kveðja til vinar †
27.11.1939 - 22.07.2009
Svefninn langi laðar til sín
lokakafla æviskeiðs,
hinsta andardráttinn.
Andinn yfirgefur húsið
hefur sig til himna
við hliðið bíður Drottinn.
Það er sumt sem maður saknar
vöku megin við.
Leggst út af á mér slokknar
svíf um önnur svið.
Í svefnrofunum finn ég
sofa lengur vil.
Þegar svefn minn verður eilífur
þá finn ég aldrei aftur til.
(Björn J. Friðbjörnsson og
Daníel Ágúst Haraldsson)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.7.2009 | 12:18
Erfiðir dagar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2009 | 09:34
Örlagagyðjurnar
Það er lykillinn að hamingju og dyggð að elska örlög sín, nauðugur viljugur.
Urður er myndgervingur fortíðarinnar, Verðandi nútímans, og Skuld framtíðarinnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.7.2009 | 03:50
Hvar ert þú...
hinn svokallaði almáttugi Guð ? Af hverju læturðu veröldin alltaf hrynja yfir mig og hefur gert síðastliðin fimmtíu ár? Hversu oft á ég að standa í þessum veraldarrústum? Hversu oft á ég að byggja þær upp? þessar múrsteinsveraldarrústir sem eru svo ótryggar og alltaf bætast fleiri við sem leggjast á eitt að stjaka við veröldinni. Ég er ekki viss um, að lagt verði í fleiri veraldarendurreisnir. Límið sem notað hefur verið við endurreisnarstörfin er á þrotum. Ég valdi mér þetta ekki sjálf. það gerðu aðrir fyrir mig.
Einn stað á ég þó eftir og það er Hjallurinn minn. Hjallar eru oft traustari en múrsteinsveraldarbyggingar.
Af hverju á ég að líða fyrir mistök og ósannindi annarra ?
Til hvers er manni úthlutað foreldrum?
Til hvers er manni úthlutað börnum?
Ekki veit ég það.
Þess vegna spyr ég, hvar ertu? - sem átt að vera svo góður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2009 | 13:50
Er svona...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.6.2009 | 04:10
Hún á afmæli í dag...
hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún...
Blettur eftir ungbarnamat á kjólnum þínum, deigklessa í hárinu... Þetta eru heiðursmerki allra yndislegra mæðra. Vertu stolt af þeim. Christine Harris.
Guð gat ekki verið alls staðar að gæta þess að krakkar kæmu sér ekki í vandræði og þess vegna bjó hann til mömmurnar. Alice
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.6.2009 | 11:49
Ljósmæðurnar okkar heiðraðar
Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson
Þær Aðalheiður Kolbeins og Ásta Gísladóttir voru heiðraðar á
sjómannadaginn fyrir störf sín.
Úr Mbl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2009 | 08:24
Sjómannadagskaffi Sifjar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)