29.4.2008 | 09:53
Pirrandi pungur
Þessi auglýsing hérna hægra megin á síðunni er farin að pirra mig svolítið. Ekki það að ég sé eitthvað viðkvæm fyrir pungum allavega ekki svona venjulegum.
Pungurinn kemur þér í samband hvar og hvenær sem þú vilt."
Fáðu netið beint í punginn strax í dag"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2008 | 15:34
Maríuerlan komin
Maríuerla Motacilla alba
Maríuerlan er af spörfuglaætt og er farfugl. Hún er smávaxin og síkvik. Fuglinn er svartur og grár á baki og hálsi og hvítur eða gulhvítur á bringu. Maríuerlan er um 18 cm á lengd, 15- 31 grömm að þyngd og með 2530 cm vænghaf. Kjörsvæði maríuerlunnar er í kringum vötn og í og við mannabyggð, en einnig er hana að finna í kjarrlendi og hraunum. Hún lifir á skordýrum, sem hún ýmist grípur á lofti eða tínir upp af jörðinni, einnig leggur hún sér til munns landsnigla og vatnabobba.
Utan varptíma er maríuerlan félagslynd, en á varptíma er hún í sérbýli og fljótlega eftir komuna til landsins fer hún að huga að varpsetri sínu og hreiðurgerð. Varptíminn er frá seinni hluta maí og fram í fyrri hluta júní. Maríuerlan verpir aðallega í klettum, urðum, hraunum og holtum, og á það til að verpa í húsum og mannvirkjum. Eggin eru yfirleitt 56 talsins, en þó hafa fundist hreiður með allt að 8 eggjum. Eggin eru c.a. 2,1 cm á lengd, 1,5 cm á breidd. Eggjaskurnið er ljósgrátt eða fölbláleitt, með þéttum dökkgráum eða brúnum blettum. Ungarnir skríða úr eggjunum eftir 1214 daga og dveljast í hreiðrinu hálfan mánuð til viðbótar. Unginn er síðan háður foreldrunum fyrst um sinn. Íslenski maríuerlustofninn telur um 100.000 pör.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2008 | 12:06
Almanak
"Almanak kemur út á fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili á Ísafirði, Bolungarvík, Súðavík, Suðureyri, Þingeyri, Flateyri, Patreksfirði, Bíldudal, Tálknafirði og nærsveitum með Íslandspósti hf.
Útgefandinn á þakkir skyldar fyrir þetta framtak
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2008 | 16:12
Að verða gamall
Eftir að hafa legið hér á sjúkrahúsinu sem reyndar er orðið elliheimili þá hræðist ég ellina. Af hverju? jú, að horfa t.d. á sumt af gamla fólkinu sitja allt upp í 12 tíma, tólf klukkustundir á sama stólnum og horfa á sjónvarpið eða bara út í loftið. Prófið sjálf sem eruð heilbrigð þó ekki væri nema 6 tíma. Sjúkrahúsið er að mínu mati undirmannað, 2-3 gangastúlkur á morgunvakt og 2 á kvöldvakt á allt upp í 15 sjúklinga hlýtur að vera of lítið enda eru þær á fullu allan daginn við að sinna brýnustu þörfum fólksins, færa því að borða, baða og fl. hafa jafnvel ekki tíma fyrir það fólk sem ekki getur matast sjálft.
Gamla fólkið þarf meira en mat og rúm, mér fannst bara skelfilegt að horfa upp á þetta.
ÉG VIL EKKI VERÐA GÖMUL KONA Á SVONA STOFNUN.
Margt eldra fólk vill vera heima og gæti það með aðstoð en hana er ekki að hafa. Það eru lítil sem engin úrræði fyrir þetta fólk og er bæjarfélaginu til vansa.
Fyrir tæplega 16 árum birtist eftirfarandi grein í Morgunblaðinu. Er þetta virkilega svona enn í dag. Tengdamóðir mín sem greinin fjallar um lést tæpum tveimur mánuðum eftir að greinin birtist.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2008 | 05:40
Undir bláum sólarsali
Skruppum yfir í Sauðlauksdal seinni partinn í gær og ætlaði betri helmingurinn að renna fyrir fiski sem hann og gerði en ekkert var að hafa, vatnið alveg steindautt. En það var eitt sem vakti athygli okkar en það var þvílíkur fjöldi af álftum á vatninu, um 30 stykki og höfum við aldrei séð annan eins hóp af álftum þarna.
Undir bláum sólar sali
Sauðlauks upp í lygnum dali
fólkið hafði af hanagali
hversdags skemmtun bænum á,
fagurt galaði fuglinn sá;
og af fleiri fugla hjali
frygð um sumarstundir;
listamaðurinn lengi þar við undi.
Eggert Ólafsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2008 | 13:51
Þær eru sko mættar
Þoli ekki þessi kvikindi. Ég er svo taugaveikluð gagnvart þessu skrímsli að ég get hreinlega ekki verið úti. Hef undanfarna daga reynt að segja sjálfri mér að þetta sé bara bilun að vera hrædd við þessa ljúflinga og vanmetnu hetjur náttúrunnar eins og ég las einhvers staðar um að þær væru. Var úti í garði áðan þegar ein kom suðandi og ég hljóp hljóðandi inn. Ég er búin að útrýma flestum blómstrandi blómum úr garðinum svo ég veit ekki í hvern fjandann þær eru að sækja. Svo styttist í næstu plágu, geitungana.
Auglýsi hér með eftir "flugnahræðslunámskeiði"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2008 | 16:05
Komin heim...
af sjúkrahúsinu, en þar endaði ég 4. apríl og var einhverja daga, tvo eða þrjá, ekki alveg viss, tengd við súrefniskút. Vil ég bara þakka öllu starfsfólkinu fyrir góða aðhlynningu en hún var alveg til fyrimyndar einnig starfsstúlkum í eldhúsi, góður matur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.4.2008 | 08:43
EKKI LENGUR VIÐHENGI
Skerðing bóta vegna tekna maka hefur verið afnumin.
Lífeyririnn hækkaði bara helling úr kr.25.700.- í kr.26.728.- eða um kr.1.028.-
Í mínu tilfelli hækkaði tekjutryggingin úr kr.48.892.- í kr.78.637.- Fæ ekki fulla tekjutryggingu út af kr.18.000.- sem ég fæ úr lífeyrissjóðum.
Mér finnst ég vera milljóner í dag.
Þetta er ekki aprílgabb.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.4.2008 | 01:50
Pólverji eða Íslendingur
Hef stundum verið að velta því fyrir mér hvort Pólverjarnir hér á staðnum séu á sér samningi eða með undanþágu hjá skipulags-og bygginganefnd og þá hvers vegna. Hér hafa á undanförnum árum sprottið upp gervihnattadiskar eins og gorkúlur út um allan bæ, aldrei hef ég séð í fundargerðum að þeir sæki um leyfi fyrir þeim. Þeir Íslendingar sem sótt hafa um leyfi fyrir diskum hafa fengið þau með þeim skilyrðum að þeir væru festir á undirstöður samþykktum af byggingafulltrúa
Þrjú dæmi af umsóknum Íslendinga
- 0711011 - Umsókn um leyfi til að setja upp gerfihnattadisk Erindi frá NN, umsókn um leyfi til að setja upp gerfihnattadisk á íbúðarhúsið í NN. Diskurinn er 120 cm í þvermál og verður settur upp samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið með því skilyrði að haft verði samráð við byggingarfulltrúa um festingar og staðsetningu.
- 5. 0712026 - Uppsetning gervihnattadiska við NN Erindi frá NN, umsókn um leyfi til að setja upp gerfihnattadiska á eða við hús númer N og N við Sigtún á Patreksfirði. Um er að ræða gerfihnattadiska sem eru 90 cm. og 120 cm í þvermál. Íbúðirnar eru í eigu Fasteigna Vesturbyggðar. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt eyti með því skilyrði að haft verði samráð við byggingarfulltrúa um festingar og staðsetningu.
- 0802051 - Sótt um leyfi fyrir gerfihnattadiskum á frístundahús NN Erindi frá NN, umsókn um leyfi til að setja upp tvo gervihnattadiska á sumarhús í landi NN, lnr. 201332. Diskarnir hafa þegar verið settir upp. Skipulags- og byggingarnefnd átelur að ekki var sótt um leyfið áður en diskarnir voru settir upp, en samþykkir erindi þar sem byggingarfulltrúi hefur skoðað uppsetningu þeirra og telur fráganginn góðan (tekið beint upp úr fundargerðum)
Það er sem sagt ekki sama hvort maður er pólskur eða íslenskur í þessu tilfelli.
Nú verð ég sökuð um kynþáttahatur, mér er ekkert í nöp við Pólverja svo framarlega að þeir fylgi sömu reglum og lögum og við í okkar landi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2008 | 09:34
Gleðilega páskahátíð
Árdegis, röðull reis úr nótt,
í roða fór María að gröf Jesú hljótt,
felldi hún tár á föla jörð
sem fann ekkert til, en var náköld og hörð.
Guð hennar var í gröf og svaf,
í guðdýrkun sinni gaf þakklæti af
smyrsl, sem hún bar við barminn sinn,
en brynjaður vopnum var hermaðurinn.
Gröfin var tóm og gatan auð,
og Guð hennar huldi sig, þar stóð hún snauð.
Felldi hún tár við fætur manns
sem fór þarna hjá, framhjá gröf Lausnarans.
María spurði manninn þann
um Meistara sinn, hvar hann lagt hefði hann.
María, ég er upprisinn,
ég er alltaf hjá þér, ég, Drottinn Guð þinn.
Guðm. G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)