Lofthreinsitæki

mynd

Hef mikið verið að spá í þetta tæki, nokkuð dýrt en ef það getur bætt lífsgæðin eins og t.d. svefnleysi er það peninganna virði

http://www.ecc.is/index.php?option=com_ahsshop&vara=233&Itemid=73


Minkar

mbl 20 júlí 1960  Minkabaninn 

 

 

 

 

 

 

       

        Mbl. 20. júlí 1960 

48 árum síðar og rúmlega 200 km. vestar koma minkar í heimsókn á sólpallinn


Þúsundasti

Var að leita í MBL frá 22. apríl 1964 og rakst þá á viðtal við Finnboga Magnússon þar sem hann er m.a. spurður

mbl 22 apríl 1964

En hver var þúsundasti íbúinn?


Hlaðborð Sifjar á sjómannadaginn

Picture 034 (Small)Picture 028 (Small)Picture 038 (Small)Picture 039 (Small)

Fleiri myndir í albúmi

Allt er þetta unnið og gefið af félagskonum nema tvær tertur sem eru frá Mosfellsbakaríi


Verið að sansa

Picture 003 (Small)Picture 002 (Small)Picture 004 (Small) 

 Allt að verða klárt hjá þeim feðgum, væntanlega sjósett í kvöld eða á morgun. Vonandi tekst það hjá þeim svo hægt verði að fara í siglingu á sjómannadaginn.

Picture 008 (Medium)Picture 012 (Medium)Picture 013 (Medium)Picture 015 (Medium)

Gróðurinn er ansi seinn, nema FÍFILLINN. Sýrenan er aðeins farin að taka við sér svo og birkið en jólatréð sem var svo fallegt í fyrra er nú orðið brúnt, sennilega grenilús þó ég viti það ekki, er ekki með græna putta eins og sagt er. Okkur hefur gengið illa að rækta upp tré hér við húsið hvort sem það er af kunnáttuleysi eða veðráttan óblíð við okkur. Meira að segja rollurnar , meðan þær voru í lausagöngu hér í þorpinu, átu jólatrén sem mér skilst að þær geri ekki að öllu jöfnu. Það rætist sennilega seint sá draumur minn að setja upp hengikoju milli trjánna.

hengibað

Það er svo sem hægt að láta draumana rætast á ýmsa vegu

 


Einmana kópur

http://www.patreksfjordur.is/

kópurselur

 

 

 

 

 

 

 

 

Selkópur, mynd af Tíðis

 Smá vangaveltur varðandi þennan kóp sem mér finnst svolítið skrýtinn, þó svo að ég hafi ekki hundsvit á kópum eða selum. Þetta er varla útselskópur því útselurinn kæpir á haustin. Í mars tók ég mynd af sel (kampsel?) sem lá á flotbryggjunni hér í höfninni. Gæti þetta ekki bara verið mamma kópsins. Þó er ýmislegt sem mælir gegn því eins og stærð kópsins eftir því sem fram kemur á  http://is.wikipedia.org/wiki/Kampselur

 „Kæping á sér stað frá miðjum mars fram í maí byrjun. Kóparnir fæðast með grábrúnan pels með ljósari flekkjum á höfði og baki. Fæðingarhárið er fallið af áður en þeir fæðast. Þeir eru um 1,3 metra langir við fæðingu og um 34 kg á þyngd“


Matur og menning á suðursvæði Vestfjarðakjálkans

Save0216Save0217

Smellið á myndirnar til að stækka

Smile Myndir í albúmi Smile


Til hamingju

Friðrik og Regína

Húrra fyrir Eurobandinu !


Kærleiksbjörninn

 Kærleiksbjörninn 7

 Þessi fallega sending kom með póstinum í dag

 

Kærleiksbjörninn 6 

 Tíðis | Föstudagurinn 14. mars 2008 kl. 11:55
Vorhugur í hjartahlýjum Kærleiksbjörnum
Kærleiksbirnirnir eru greinilega í vorhug og hlyjan ekki bara að koma fram í bráðnandi snjó. Kassi með gulum borða á beið fyrir utan vinnustaði á Patreksfirði í morgun, innihaldið var falleg páskaskreyting. Á pakkanum var hvítur miði límdur utan á þar sem fólki er bent á að grípa sér miða sem eru á hjartaprjóni og innihalda falleg skilaboð til þeirra sem taka sér einn slíkan. Á hvíta miðanum stóð:

Kæri viðtakandi
Við félagar í F.f viljum biðja þig að taka innihaldið úr þessum kassa og setja á afgreiðsluborðið hjá þér svo þínir viðskiptavinir geti dregið sér gleðimiða frá F.f. Megi þú og þitt starfsfólk eiga gleðilega páska.

Þarna voru greinilega sömu aðilar á ferð og hafa staðið fyrir ýmsum gleðilegum uppátækjum af og til á Patreksfirði í vetur bæjarbúum til ómældrar ánægju.
 

 Kærleiksbjörninn 5

ruv.is / bb.is | Laugardagurinn 5. janúar 2008 kl. 16:21
Hjartað brann um áramótin

Leynihópurinn á Patreksfirði minnti á sig á áramótunum en merki hópsins, hjartað, brann skært við áramótabrennuna. Hópurinn fór þess á leit við björgunarsveitina að hún kæmi hjartanu fyrir í blysum á krossviðarplötu sem yrði brennd við bálköstinn. Leynihópurinn fékk mikla athygli á síðasta ári enda vel verðskulduð og var það vinsæll að hann hafnaði í 10. sæti í kosningum Rásar 2, á manni ársins. Jólin fóru vel fram í Vesturbyggð. Þrátt fyrir hrakspár um rauð jól langt fram eftir desembermánuði féll hin fegursti jólasnjór yfir hátíðina og mátti sjá þyrpingar af snjókörlum rísa víða í þorpinu enda ekta snjóboltasnjór yfir öllu.

Vindur og slagviðri stoppuðu ekki íbúa í skotbardaganum en á Patreksfirði sem og víðar logaði himininn yfir áramótin. Sala var mjög góð en sökum veðurs og veðurspár dróst hún heldur saman. Hvetja björgunarsveitarmenn því bæjarbúa til að fylla aftur á magasínin fyrir þrettándann og samstilla úrin fyrir skot þar sem besti tíminn væri á sunnudag til kl. 20. Frá þessu er sagt á ruv.is.
 

 Kærleiksbjörninn 4 

 24 stundir | Laugardagurinn 22. desember 2007 kl. 17:50
Leynihópurinn gleður á Patró
Patreksfirðingar standa á öndinni yfir hópi fólks sem skilur eftir glaðleg skilaboð til bæjarbúa í skjóli myrkurs. 24 stundir höfðu uppi á einum meðlimi hópsins sem tjáði sig nú í fyrsta skipti við fjölmiðla.

Fjórum sinnum hefur hópurinn farið á kreik og skilið eftir kærleiksrík skilaboð til Patreksfirðinga - nú síðast í nótt þegar styttan af Kleifarkarlinum var skreytt í skjóli nætur og skilaboðum komið fyrir.

„Þetta var ekki hugsað upphaflega sem leynifélag. Svo ákváðum við að gera fyrsta verkefnið í leyni og það var bara svo ofboðslega gaman að skjótast um í skjóli nætur og passa að láta ekki sjá sig,“ segir huldumanneskja úr dularfullum leynihópi á Patreksfirði.

Athygli um land allt
24 stundir höfðu upp á forsprakka hópsins sem hvorki vildi gefa upp nafn sitt né annarra meðlima hópsins.
„Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt og jákvætt. Við vorum orðin svolítið leið á neikvæðum fréttum,“ segir huldumanneskjan um ástæðurnar á bak við góðverkin. „Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt fyrir okkur, svo þróaðist það út í að vera skemmtilegt fyrir alla.“

Patreksfirðingar standa á gati og velta mikið fyrir sér hver er á bak við skilaboðin. Meðlimir leynihópsins taka virkan þátt í vangaveltunum og segir huldumanneskjan að stundum sé erfitt að
halda andlitinu á meðan.
„Við vinnum öll sitt á hverjum vinnustaðnum, engir tveir vinna saman. Þannig að við þurfum öll að taka þátt í þessum pælingum og halda andlitinu,“ segir hún. „Það er auðveldara vegna þess að við erum ekki að vinna saman, það væri hrikalegt ef við værum að vinna
saman.“

Bæjarstjóri sáttur
Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir skilaboðin frá leynihópnum ánægjuleg. „Það eru einhverjir sem segjast vita hverjir þetta eru, en ég held að það séu bara getgátur,“ segir hann. „Skilaboðin eru ljós í myrkrinu, þau koma fólki a

 Kærleiksbjörninn 3

 Tíðis | Föstudagurinn 23. nóvember 2007 kl. 8:46
Dularfullu skilaboðin birtast aftur á Patreksfirði
Dularfulli skilaboðahöfundurinn sýnir kærleik sinn í verki enn og aftur í morgun. Þegar syfjaðir Patreksfirðingar mættu til vinnu hafði ástríkur íbúi lagt það á sig að berjast í gegnum slagviðrið til þess eins að minna á mikilvægi þess að njóta lífsins.

Hengt hafði verið upp á hurðir og glugga fyrirtækja og stofnanna á Patreksfirði spakmæli sem létta ætti lund íbúa en enn er óráðið hver eða hverjir standa á bak við þetta skemmtilega uppátæki.

Efirfarandi texti var á bréfi sem var á vinnustað Tölvuvinnslunnar.

Gæt þessa dags

Því gærdagurinn
er draumur
og morgundagurinn
hugboð
sé deginum
í dag vel varið,
mun gærdagurinn
breytast í
verðmæta minningu
og morgundagurinn
í vonarbjarma.

Gæt því vel þessa dags

Megir þú eiga yndislegan dag.
F.f.

Kærleiksbjörninn 2

 Tíðis | Mánudagurinn 29. október 2007 kl. 10:13
Kærleiksbjörn á ferð um Patreksfjörð.
Þegar fréttamaður var á leið til vinnu í morgun fylltist hjarta hans af kærleik. Eftir endilögnu Aðalstrætinu mátti sjá bleikar og rauðar blöðrur sem skreyttu bæinn. Skemmst er að minnst kærleiksorðanna sem sem lágu undir rúðuþurrkum á bílum Patreksfirðinga fyrir rúmum mánuði síðan. Kærleiksbjörinn dularfulli gleður hjörtu samborgara sinna og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar. Hvort Patreksfjörður er orðinn Kærleiksþorp skal ósagt en með hjálp Kærleiksbjarnarins ættu Patreksfirðingar að vera á réttri leið

 

  kærleiksbjörninn 1

vesturbyggd.is | Föstudagurinn 14. september 2007 kl. 12:52

Patreksfirðingum hlýnaði um hjartarætur í morgun
Þegar Patreksfirðingar komu út í morgun tóku flestir þeirra eftir litlum miðum undir rúðuþurrkunum. Á þessa litlu miða var búið að prenta falleg orð um lífð og mynd af rauðu hjarta. Hvort þetta er upphafið af ástarviku á Patreksfirði skal ekki segja en ljóst er að þessi dularfulli skilaboðahöfundur hefur fengið okkur öll til að íhuga lífið og tilveruna í morgunsárið. Á myndinni hér má sjá hluta skilaboðanna sem starfsmenn bæjarskrifstofu fengu á sínum bílum í morgun.


Örnefni mánaðarins, Brellur

http://www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_nafn_ornefni_manadarins

Patró


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband