14.7.2008 | 20:34
Verið er að laga veginn (troðninginn) niður í Keflavík
Keflavík (V-Barð) er lítil vík vestan við Rauðasand, milli Kerlingarháls og Látrabjargs. Samnefnt býli var í djúpri og þröngri dalskvompu sem liggur upp af víkinni. Kunn veiðistöð var í Keflavík um skeið. Nú er þar slysavarnaskýli sem Guðrúnarbúð er nefnt.
Fransar heitir á einum stað í Keflavík og er sagt að þar hafi franskir ræningjar verið drepnir og heygðir.
Fuglagötur heita götutroðningur úr Keflavík og upp á Látraheiði, bak við bjargið. Um þær var fuglinn fluttur af bjargbrúninni og síðan niður á Rauðasand. Heiðin er grýtt, gróðurlaus og ógreiðfær. Vatn er þar hvergi nema í Gvendarbrunni. Við hann er fjöldi af smá vörðum því að það var fyrrum siður að hver sem færi þar í fyrsta sinn hlæði þar vörðu og mundi hann þá ekki villast á heiðinni.
Af Látrahálsi, milli Breiðuvíkur og Hvallátra, liggur jeppavegur yfir fjallið til Keflavíkur
Úr Íslandshandbókinni
Bloggar | Breytt 15.7.2008 kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2008 | 20:23
Tjaldsvæði og fjölskyldumunstur
Í fyrrasumar komum við hjónin á ónefnt tjaldsvæði og báðum um að fá að planta okkar litla fjölbýlishúsi niður. Umsjónarmaðurinn leit aftur í bílinn og spurði hvort við værum með börn, já svaraði maðurinn minn, þau eru í kassa hérna aftur í. Þá sagði umsjónarmaðurinn, við viljum nefnilega ekki börn, þau gætu skemmt húsgögnin á pallinum fyrir utan kaffihúsið, en það er í lagi að þið verðið hér í nótt. Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir sáum við eftir að hafa þegið þetta en nenntum ekki að taka okkur saman. En í bítið morguninn eftir pilluðum við okkur burt og höfum ekki í hyggju að koma á þetta tjaldsvæði aftur. Það skal tekið fram að börnin fengu að dúsa í kassanum um nóttina.
Fyrir nokkrum árum vorum við á öðru ónefndu tjaldvæði og þar var ekki svefnfriður fyrir drukknu fullorðnu fólki. Það er ekki alltaf unga fólkið sem er til vandræða.
Svo er þetta með aldurstakmark á tjaldvæðum, það er kannski í lagi að takmarka það við 18 ára (sjálfræðisaldurinn) en 23 ára aldurstakmark er bara út í Rob Roy eða að banna fólki að fara inn á svæði nema það sé með börn, öfugt við það sem við lentum í.
Það er sko vandlifað í henni paradís
Rakst á þetta í Vefritinu
http://www.vefritid.is/index.php/greinasafn/28-ara-og-visa%c3%b0-af-tjaldsv%c3%a6%c3%b0um/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2008 | 09:26
Aðalstræti 74
Hvers vegna kolanám í Stálfjalli?
Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út varð þess þegar vart að kol myndi skorta á Íslandi. Bryndrekar voru frekir á kolin, sem yrðu á óviðráðanlegu verði og flutningar erlendis frá voru erfiðir vegna sjóhernaðar Breta og Þjóðverja.
Hver var Guðmundur koli?
Hann var helsti hvatamaður þess að hrinda af stað kolanámi í Stálfjalli og einnig í Þernudal í Arnarfirði. Hann hét fullu nafni Guðmundur Einar Júlíus Guðmundsson og var fæddur í Reykjavík árið 1862. Hann hélt til Danmerkur árið 1876 og lærði þar snikkaravinnu í 4 ár. Hann vann meðal annars við byggingu Fríhafnarinnar í Kaupmannahöfn. Árin 1884- 85 var hann í Rússlandi við smíðar.Hann kom á ný til Íslands 1904 og byggði m.a. bryggjur á Eskifirði, Stykkishólmi og Ísafirði.
Hvað varð um húsið á Völlunum?
Íveruhúsið var selt og rifið, en síðan endurbyggt á Suðureyri við Tálknafjörð. Þaðan var það svo flutt í heilu lagi til Patreksfjarðar og er nú efri hæðin á Aðalstræti 74. Húsinu var fleytt á milli fjarðanna.
Úr Mbl. 02.07.2008
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.6.2008 | 16:03
Framsóknarkaffi og fl
Það er ýmislegt sem kemur í ljós þegar farið er að taka til. Framsóknarkaffi. sjálfstæðissvali og mjólkurferna frá síðasta pökkunardegi Mjólkurstöðvarinnar 30. apríl, man ekki hvaða ár. Þetta er kannski bara vísir að safni, hver veit.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.6.2008 | 22:52
Gula húsið
Þið sem komið í heimsókn, vinsamlega setjið upp sólgleraugu eða rafsuðuhjálm. Eitthvað klikkaði litablöndunin (ekki hjá okkur). liturinn átti að vera melónugulur en varð dökk, dökk appelsínugulur, hann er dekkri en myndin sýnir og ekki nokkur leið að láta svona dökka liti þekja vel svo nú á eftir að gera eitthvað róttækt. Ekki spyrja af hverju við fórum að klína þessu á húsið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2008 | 09:28
Lúðulok á sjösofendadegi
Það er liðin sú tíð að farið sé bryggjuna að fá sér í soðið eða að einhver sjóarinn hringi og segi, viltu ekki koma og fá þér í soðið. Á okkar fyrstu búskaparárum þurftum við nánast aldrei að kaupa okkur sporð. Á tólfta tímanum gærkvöldi þegar Sævar var að gadda bílslagið rennir pallbíll í hlaðið og bílstjórinn (sjóari) spyr hann hvort hann geti ekki lánað sér nokkrar kartöflur hann ætli að fara að sjóða sér rauðmaga. Kartöflurnar fékk hann og þegar hann var búin að spjalla við okkur smástund og er að fara segir hann, viljið þið ekki smá lúðulok og snarast út að bíl og kemur með þessa gullfallegu lúðu og segir um leið, erum við þá ekki kvitt, við héldum það nú. Það var eins og við hefðum fengið gull svo ánægð vorum við með lúðuna. Þegar inn var komið segir Sævar við mig, Hann getur sko fengið kartöflur á hverju kvöldi. Þannig að í kvöld á sjösofendadegi verður lúða í matinn og hún verður sko ekki elduð á einhvern nýtísku hátt heldur soðin upp á gamla mátann.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Sjösofendadagur
27. júní er sjösofendadagur. Heitið sjösofendadagur finnst mörgum ansi skrýtið. En dagurinn er helgaður kristnum unglingum frá Efesus í Litlu-Asíu sem sváfu í tvær aldir til að losna undan ofsóknum. Unglingarnir leituðu skjóls í helli og voru múraðir inni. Guð lét svefn falla á þá og þeir vöknuðu ekki aftur fyrr en eftir tvær aldir.
http://www.namsgagnastofnun.is/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2008 | 23:36
Náttúrusteinar á Jónsmessunótt
Jónsmessunóttin, aðfaranótt 24. júní, er ein þeirra fjögurra nátta í íslenskri þjóðtrú sem taldar eru hvað magnaðastar og þá geta alls kyns dularfullir hlutir gerst. Hinar næturnar eru allar í skammdeginu: Jólanótt, nýársnótt og þrettándanótt. Sagt er að á Jónsmessunótt fljóti upp ýmiss konar náttúrusteinar sem geta komið að góðu gagni. Þá má einnig finna ýmis nýtileg grös.
Ætli hann langafi minn hafi fundið þennan á Jónsmessunótt?
Tindastóll
Tindastóll (995m) er u.þ.b. 18 km langt og áberandi fjall norðan Sauðárkróks við vestanverðan Skagafjörð. Fyrrum kölluðu Laxdælir það Eilífsfjall og uppi á því er tjörn sunnan Einhyrningsdals.
Þjóðsagan segir, að óskasteinar fljóti upp í tjörninni hverja Jónsmessunótt, en ekki eru allir, sem leggja leið sína þangað jafnheppnir. Sagt er að stúlka ein hafi fundið einn slíkan án þess að gera sér grein fyrir því. Þar sem hún stóð þarna við tjörninga með steininn í hendinni, varð henni á að óska þess, að hún væri kominn í dýrlegustu veizlu í heimi. Hún stóð skyndilega í fagurri höll og til hennar kom maður, sem rétti henni gullbikar. Hún tók við honum en var svo brugðið, að hún óskaði, að hún væri kominn til baka á sama stað. Hún fleygði steininum út í tjörnina til að hann villti ekki um fyrir henni á ný. Bikarinn afhenti hún prestinum og fékk þrjár jarðir í Skagafirði að launum.
Passið ykkur bara á bjarndýrunum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.6.2008 | 14:37
Afmæli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 09:42
Ætlum í Hornið
Ekki til að veiða, áin er ekki opnuð fyrr en 6. júlí. Nú ætlar Sævar að mála það sem eftir er af þakinu, hann má nú hafa hraðar hendur því það spáir rigningu á sunnudag. Síðan á að slá og laga girðingu.
Þetta er algjör sælureitur að vera á, ekkert sjónvarp enginn sími, bara rás 1. Ég kom þarna fyrst árið 1975, þá var húsið og öll aðstaða mjög bágborin. Alltaf hefur verið reynt að gera eitthvað smá á hverju ári, var það t.d. mikil bót þegar rafmagn var tekið inn en áður hafði verið notast við ljósavél, en maður saknar nú stundum gamla hljóðsins og ég man að maður vaknaði við á nóttunni þegar vélin drap á sér. Þá er löngu komið heitt vatn í húsið, áður þurfti að hita allt vatn á gasvélinni með tilheyrandi gufu. Ný gólfefni eru komin á allt og búið að klæða að mestu herbergin á efri hæðinni. Næst er að klæða loft í stofu og eldhúsi. Þá er kominn heitur pottur. Fyrir framan og utan við húsið hefur verið smíðaður sólpallur.
Túnin í Fjarðarhorni hafa í gegnum árin verið nytjuð frá Múla en nú hefur búskapur verið aflagður þar, þannig að í ár berst enginn töðuilmur heim í Horn.
Vegurinn yfir Kollafjarðarheiði F66 (4x4) liggur í gegnum hlaðið í Fjarðarhorni og er það mjög falleg leið yfir í Djúp.
Ekki má gleyma að mjög góð laxveiði hefur verið á ánni undanfarin ár, þá er gott berjaland fram á dalnum.
http://www.123.is/svfp/default.aspx
Mats Wibe Lund
P.S Heitt á könnunni næstu daga
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2008 | 16:01
World Wide Knit in Public Day
http://www.sjoraeningjahusid.is/
Fúlt að geta ekki mætt en er svo sem að fara í sælureitinn og tek bara prjónana með mér
Þessi er tekin út um stofugluggann í gærkvöldi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)