19.11.2008 | 14:10
Góður þessi
Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum
sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu
ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða
fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og loks sátu einungis þeir
þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur
af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.
Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á
móti sjúklingi sem missti höndina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu
þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa
aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og
því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.
Rússneskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem
lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná
skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð
svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að
segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.
Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni
staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi
hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á
skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að
setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og
hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".
Athugasemdir
Góður!
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 15:19
, hehehehehe hahahahahah híhíhíhíhí..........með þeim betri sem ég hef séð í langan tíma.
Bestu kveðjur,
Sólveig.
Sólveig Ara (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 16:21
Mikið,asskoti er gott að geta brosað út í annað, ef ekki bæði á þessum síðustu og verstu. Takk Guðný. Kv. Kristján.
..., 19.11.2008 kl. 23:47
hahahahahaha. Þessi er æði
Fanney Inga (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 22:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.