Ekkert smá sem gengur á

t_is_for_thunder

Þvílíkar þrumur og eldingar sem ganga hér yfir, hef bara aldrei heyrt annað eins. Fyrst kom blossi síðan eins og drunur og svo hrikaleg sprenging, það nötraði allt og söng í fjöllunum. Þetta var álíka og dynamitsprengingin hérna á gamlárskvöld fyrir nokkrum árum þegar rúður sprungu í húsum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Bara fjör hjá ykkur.  Mér er ekkert sérlega vel við eldingar.....a.m.k ekki í miklu magni.  Gleymi seint þrumuveðri sem gekk yfir í lok júlí 1969......þá drundi sko í fjöllunum við Rauðasand og við vorum að leið í og úr Skor þegar þessi ósköp dundu yfir......þvílíkt úrhelli sem fylgdi.  Amma sendi Braga frænda til að gá að okkur - hún var svo hrædd um barnið (ég var það barn!!!).  Sendi þér lítinn pakka eftir helgina.

Bestu kveðjur,

Sólveig.

Sólveig Ara (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband