Í garðinum og Vinahúsi

Kirkjugarðurinn

Á rölti mínu í blíðviðrinu í fyrradag um kirkjugarðinn ásamt fleirum, þar á meðal Grétari Guðmundssyni sem vann við garðinn í einhvern tíma og gat uppfrætt okkur hin, stöldruðum við m.a. við leiði Helgu Ólafsdóttur f. 1896, d. 1979. Þetta var ánægjuleg stund í garðinum, svo er hann líka orðinn svo fallegur og vel hirtur. Þegar við kvöddumst sagði einn úr hópnum, við hittumst bara hér aftur. Það er eitt sem er víst að við eigum einhvern tíma eftir að hittast þarna aftur.

Jón Úr VörJón E GuðmundssonSteingrímur M. Sigfúusson

Fyrr um daginn fórum við í „Vinahús“ í Kaupfélagshúsinu, en þar er sýning á gömlum ljósmyndum, verkum eftir Jón úr Vör,( fæddur á Patreksfirði 21. janúar 1917) strengjabrúðum eftir eftir Jón E Guðmundsson (fæddur á Patreksfirði 5. janúar 1915) og safn tengt Steingrími Sigfússyni (f. 12. júní 1919) organista Patreksfjarðarkirkju til margra ára.

Endilega kíkið á þessa sýningu.

 

Í gærmorgun þurfti ég að fletta upp í árbók Barðastrandarsýslu 1955-1956, og rakst þá á þetta ljóð eftir Helgu sem áður er nefnd.

 

Við lestur ljóðasafns Davíðs

Snemma ég til sængur fer

síðla rís á fætur,

því Fagraskógar-skáldið mér

skemmtir allar nætur.

 

Yndi er margt hjá okkur tveim,

ört því tíminn líður.

Sæl ég dvel í sölum þeim,

sem að hann mér býður.

 

Hans ég elska andans mátt.

Engin lítil vísa

þeim óðsnillingi' á allan hátt

með orðum kann að lýsa.

 

Hann flýgur hátt og fallega

frjáls um lendur Braga,

milli ljóðalínanna

liggur ævisaga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Já, kirkjugarðurinn á Patreksfirði er einn sá fallegasti sem ég hef komið í - öðru máli gegnir um kirkjugarðinn við Selárdalskirkju, hann er öndverður við garðinn á Patreksfirði.

Gaf mér ekki tíma til að kíkja í gamla Kaupfélagshúsið um helgina, enda stutt stopp vestra.  Frábært framtak þessi sýning enda hefur Patreksfjörður alið af sér margan listamanninn - í það minnsta eiga þeir margir rætur að rekja vestur.

Bestu kveðjur,

Sólveig.

Sólveig Ara (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband