27.6.2008 | 09:28
Lúðulok á sjösofendadegi
Það er liðin sú tíð að farið sé bryggjuna að fá sér í soðið eða að einhver sjóarinn hringi og segi, viltu ekki koma og fá þér í soðið. Á okkar fyrstu búskaparárum þurftum við nánast aldrei að kaupa okkur sporð. Á tólfta tímanum gærkvöldi þegar Sævar var að gadda bílslagið rennir pallbíll í hlaðið og bílstjórinn (sjóari) spyr hann hvort hann geti ekki lánað sér nokkrar kartöflur hann ætli að fara að sjóða sér rauðmaga. Kartöflurnar fékk hann og þegar hann var búin að spjalla við okkur smástund og er að fara segir hann, viljið þið ekki smá lúðulok og snarast út að bíl og kemur með þessa gullfallegu lúðu og segir um leið, erum við þá ekki kvitt, við héldum það nú. Það var eins og við hefðum fengið gull svo ánægð vorum við með lúðuna. Þegar inn var komið segir Sævar við mig, Hann getur sko fengið kartöflur á hverju kvöldi. Þannig að í kvöld á sjösofendadegi verður lúða í matinn og hún verður sko ekki elduð á einhvern nýtísku hátt heldur soðin upp á gamla mátann.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Sjösofendadagur
27. júní er sjösofendadagur. Heitið sjösofendadagur finnst mörgum ansi skrýtið. En dagurinn er helgaður kristnum unglingum frá Efesus í Litlu-Asíu sem sváfu í tvær aldir til að losna undan ofsóknum. Unglingarnir leituðu skjóls í helli og voru múraðir inni. Guð lét svefn falla á þá og þeir vöknuðu ekki aftur fyrr en eftir tvær aldir.
http://www.namsgagnastofnun.is/
Athugasemdir
Bestu kveðjur,
Sólveig.
Sólveig Ara (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.