23.6.2008 | 23:36
Náttúrusteinar á Jónsmessunótt
Jónsmessunóttin, aðfaranótt 24. júní, er ein þeirra fjögurra nátta í íslenskri þjóðtrú sem taldar eru hvað magnaðastar og þá geta alls kyns dularfullir hlutir gerst. Hinar næturnar eru allar í skammdeginu: Jólanótt, nýársnótt og þrettándanótt. Sagt er að á Jónsmessunótt fljóti upp ýmiss konar náttúrusteinar sem geta komið að góðu gagni. Þá má einnig finna ýmis nýtileg grös.
Ætli hann langafi minn hafi fundið þennan á Jónsmessunótt?
Tindastóll
Tindastóll (995m) er u.þ.b. 18 km langt og áberandi fjall norðan Sauðárkróks við vestanverðan Skagafjörð. Fyrrum kölluðu Laxdælir það Eilífsfjall og uppi á því er tjörn sunnan Einhyrningsdals.
Þjóðsagan segir, að óskasteinar fljóti upp í tjörninni hverja Jónsmessunótt, en ekki eru allir, sem leggja leið sína þangað jafnheppnir. Sagt er að stúlka ein hafi fundið einn slíkan án þess að gera sér grein fyrir því. Þar sem hún stóð þarna við tjörninga með steininn í hendinni, varð henni á að óska þess, að hún væri kominn í dýrlegustu veizlu í heimi. Hún stóð skyndilega í fagurri höll og til hennar kom maður, sem rétti henni gullbikar. Hún tók við honum en var svo brugðið, að hún óskaði, að hún væri kominn til baka á sama stað. Hún fleygði steininum út í tjörnina til að hann villti ekki um fyrir henni á ný. Bikarinn afhenti hún prestinum og fékk þrjár jarðir í Skagafirði að launum.
Passið ykkur bara á bjarndýrunum.
Athugasemdir
Fróðlegt, ekki man ég eftir að hafa heyrt þessa sögu
Anna, 26.6.2008 kl. 08:24
Bestu kveðjur vestur,
Sólveig.
Sólveig (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.