26.5.2008 | 13:02
Einmana kópur
Selkópur, mynd af Tíðis
Smá vangaveltur varðandi þennan kóp sem mér finnst svolítið skrýtinn, þó svo að ég hafi ekki hundsvit á kópum eða selum. Þetta er varla útselskópur því útselurinn kæpir á haustin. Í mars tók ég mynd af sel (kampsel?) sem lá á flotbryggjunni hér í höfninni. Gæti þetta ekki bara verið mamma kópsins. Þó er ýmislegt sem mælir gegn því eins og stærð kópsins eftir því sem fram kemur á http://is.wikipedia.org/wiki/Kampselur
Kæping á sér stað frá miðjum mars fram í maí byrjun. Kóparnir fæðast með grábrúnan pels með ljósari flekkjum á höfði og baki. Fæðingarhárið er fallið af áður en þeir fæðast. Þeir eru um 1,3 metra langir við fæðingu og um 34 kg á þyngd
Athugasemdir
Hann er ótrúlega krúttlegur þessi og ansi loðinn.
Anna (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.