21.5.2008 | 17:29
Kærleiksbjörninn
Þessi fallega sending kom með póstinum í dag
Tíðis | Föstudagurinn 14. mars 2008 kl. 11:55
Vorhugur í hjartahlýjum Kærleiksbjörnum
Kærleiksbirnirnir eru greinilega í vorhug og hlyjan ekki bara að koma fram í bráðnandi snjó. Kassi með gulum borða á beið fyrir utan vinnustaði á Patreksfirði í morgun, innihaldið var falleg páskaskreyting. Á pakkanum var hvítur miði límdur utan á þar sem fólki er bent á að grípa sér miða sem eru á hjartaprjóni og innihalda falleg skilaboð til þeirra sem taka sér einn slíkan. Á hvíta miðanum stóð:
Kæri viðtakandi
Við félagar í F.f viljum biðja þig að taka innihaldið úr þessum kassa og setja á afgreiðsluborðið hjá þér svo þínir viðskiptavinir geti dregið sér gleðimiða frá F.f. Megi þú og þitt starfsfólk eiga gleðilega páska.
Þarna voru greinilega sömu aðilar á ferð og hafa staðið fyrir ýmsum gleðilegum uppátækjum af og til á Patreksfirði í vetur bæjarbúum til ómældrar ánægju.
ruv.is / bb.is | Laugardagurinn 5. janúar 2008 kl. 16:21
Hjartað brann um áramótin
Leynihópurinn á Patreksfirði minnti á sig á áramótunum en merki hópsins, hjartað, brann skært við áramótabrennuna. Hópurinn fór þess á leit við björgunarsveitina að hún kæmi hjartanu fyrir í blysum á krossviðarplötu sem yrði brennd við bálköstinn. Leynihópurinn fékk mikla athygli á síðasta ári enda vel verðskulduð og var það vinsæll að hann hafnaði í 10. sæti í kosningum Rásar 2, á manni ársins. Jólin fóru vel fram í Vesturbyggð. Þrátt fyrir hrakspár um rauð jól langt fram eftir desembermánuði féll hin fegursti jólasnjór yfir hátíðina og mátti sjá þyrpingar af snjókörlum rísa víða í þorpinu enda ekta snjóboltasnjór yfir öllu.
Vindur og slagviðri stoppuðu ekki íbúa í skotbardaganum en á Patreksfirði sem og víðar logaði himininn yfir áramótin. Sala var mjög góð en sökum veðurs og veðurspár dróst hún heldur saman. Hvetja björgunarsveitarmenn því bæjarbúa til að fylla aftur á magasínin fyrir þrettándann og samstilla úrin fyrir skot þar sem besti tíminn væri á sunnudag til kl. 20. Frá þessu er sagt á ruv.is.
24 stundir | Laugardagurinn 22. desember 2007 kl. 17:50
Leynihópurinn gleður á Patró
Patreksfirðingar standa á öndinni yfir hópi fólks sem skilur eftir glaðleg skilaboð til bæjarbúa í skjóli myrkurs. 24 stundir höfðu uppi á einum meðlimi hópsins sem tjáði sig nú í fyrsta skipti við fjölmiðla.
Fjórum sinnum hefur hópurinn farið á kreik og skilið eftir kærleiksrík skilaboð til Patreksfirðinga - nú síðast í nótt þegar styttan af Kleifarkarlinum var skreytt í skjóli nætur og skilaboðum komið fyrir.
Þetta var ekki hugsað upphaflega sem leynifélag. Svo ákváðum við að gera fyrsta verkefnið í leyni og það var bara svo ofboðslega gaman að skjótast um í skjóli nætur og passa að láta ekki sjá sig, segir huldumanneskja úr dularfullum leynihópi á Patreksfirði.
Athygli um land allt
24 stundir höfðu upp á forsprakka hópsins sem hvorki vildi gefa upp nafn sitt né annarra meðlima hópsins.
Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt og jákvætt. Við vorum orðin svolítið leið á neikvæðum fréttum, segir huldumanneskjan um ástæðurnar á bak við góðverkin. Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt fyrir okkur, svo þróaðist það út í að vera skemmtilegt fyrir alla.
Patreksfirðingar standa á gati og velta mikið fyrir sér hver er á bak við skilaboðin. Meðlimir leynihópsins taka virkan þátt í vangaveltunum og segir huldumanneskjan að stundum sé erfitt að
halda andlitinu á meðan.
Við vinnum öll sitt á hverjum vinnustaðnum, engir tveir vinna saman. Þannig að við þurfum öll að taka þátt í þessum pælingum og halda andlitinu, segir hún. Það er auðveldara vegna þess að við erum ekki að vinna saman, það væri hrikalegt ef við værum að vinna
saman.
Bæjarstjóri sáttur
Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir skilaboðin frá leynihópnum ánægjuleg. Það eru einhverjir sem segjast vita hverjir þetta eru, en ég held að það séu bara getgátur, segir hann. Skilaboðin eru ljós í myrkrinu, þau koma fólki a
Tíðis | Föstudagurinn 23. nóvember 2007 kl. 8:46
Dularfullu skilaboðin birtast aftur á Patreksfirði
Dularfulli skilaboðahöfundurinn sýnir kærleik sinn í verki enn og aftur í morgun. Þegar syfjaðir Patreksfirðingar mættu til vinnu hafði ástríkur íbúi lagt það á sig að berjast í gegnum slagviðrið til þess eins að minna á mikilvægi þess að njóta lífsins.
Hengt hafði verið upp á hurðir og glugga fyrirtækja og stofnanna á Patreksfirði spakmæli sem létta ætti lund íbúa en enn er óráðið hver eða hverjir standa á bak við þetta skemmtilega uppátæki.
Efirfarandi texti var á bréfi sem var á vinnustað Tölvuvinnslunnar.
Gæt þessa dags
Því gærdagurinn
er draumur
og morgundagurinn
hugboð
sé deginum
í dag vel varið,
mun gærdagurinn
breytast í
verðmæta minningu
og morgundagurinn
í vonarbjarma.
Gæt því vel þessa dags
Megir þú eiga yndislegan dag.
F.f.
Tíðis | Mánudagurinn 29. október 2007 kl. 10:13
Kærleiksbjörn á ferð um Patreksfjörð.
Þegar fréttamaður var á leið til vinnu í morgun fylltist hjarta hans af kærleik. Eftir endilögnu Aðalstrætinu mátti sjá bleikar og rauðar blöðrur sem skreyttu bæinn. Skemmst er að minnst kærleiksorðanna sem sem lágu undir rúðuþurrkum á bílum Patreksfirðinga fyrir rúmum mánuði síðan. Kærleiksbjörinn dularfulli gleður hjörtu samborgara sinna og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar. Hvort Patreksfjörður er orðinn Kærleiksþorp skal ósagt en með hjálp Kærleiksbjarnarins ættu Patreksfirðingar að vera á réttri leið
vesturbyggd.is | Föstudagurinn 14. september 2007 kl. 12:52
Patreksfirðingum hlýnaði um hjartarætur í morgun
Þegar Patreksfirðingar komu út í morgun tóku flestir þeirra eftir litlum miðum undir rúðuþurrkunum. Á þessa litlu miða var búið að prenta falleg orð um lífð og mynd af rauðu hjarta. Hvort þetta er upphafið af ástarviku á Patreksfirði skal ekki segja en ljóst er að þessi dularfulli skilaboðahöfundur hefur fengið okkur öll til að íhuga lífið og tilveruna í morgunsárið. Á myndinni hér má sjá hluta skilaboðanna sem starfsmenn bæjarskrifstofu fengu á sínum bílum í morgun.
Athugasemdir
Kv.
Sólveig.
Sólveig Ara (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 18:56
Kærleiksbirnir ?
Þetta er hrein og tær snilld !
Þetta er bara dásamlegt, ég varð svo glöð þegar þessi litli miði kom i hendur mér út pósthólfinu mínu.
Það er einhver/einhverjir þarna úti í samfélaginu sem hefur unun af því að bæta mannlífið, og hlýja okkur hinum um hjartarætur.
Þið sem vitið, ekki segja frá !
Ég get ekki sagt það of oft; "Þetta er bara dásamlegt."
F.f. haltu áfram elsklingur.
Jenta (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.