Myrkrið víkur alltaf fyrir ljósinu.

 ljósið

Það eru tvö herbergi. Annað er almyrkvað og hitt er albjart. Milli þessara herbergja er hurð. Hvað gerist ef þú opnar hana? Fer myrkrið inn í bjarta herbergið eða fer ljósið inn í dimma herbergið? Auðvitað fer ljósið inn í dimma herbergið, en samt minnkar ekki birtan í bjarta herberginu. Ljósið sigrar alltaf.
Eftir þessa sögu hugsa ég sem svo að þegar ég er langt niðri, þá er ég í dimma herberginu, og allt sem ég þarf að gera er að opna hurðina inn í bjarta herbergið. Stundum er leiðin að hurðinni erfið, en hurðin er aldrei læst og ég skal komast að henni og opna hana. Þessi herbergi eru ekki í neinu húsi, heldur höfum við öll þessi herbergi inni í okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl mín kæra,

Ég hef nú gjarnan sagt að það sé enginn veggur svo svartur að það glampi ekki einhvers staðar á hann, en lýsingin sem þú skrifar er snilld.  Hef þurft að horfa á fólk í dimma herberginu að leita að hurðinni.  Hefur þú lesið bókina Konan í köflótta stólnum?  Snilldarbók sem vert er að lesa aftur og aftur.

Eigðu sprellfjörgurar stundir í bjarta herberginu.

Bestu kveðjur,

Sólveig.

Sólveig Ara (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 22:38

2 Smámynd: Anna

Góðan daginn Guðný.  Þetta er ein af kiljunum í minni eigu, virkilega góð bók. Ég er sammála Sólveigu, snilldarlýsing hjá þér á því sem gerist þegar opnast á milli herbergjanna.  En annars bara góða helgi

Anna, 10.5.2008 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband