Fiskisúpa Rósu

Fékk þessa súpu á sjúkrahúsinu um daginn og uppskriftina með 

 fiskur

 Olía

3-4 tsk karrý

1 laukur

2-3 stilkar sellerý

3-4 gulrætur

1 rauð paprika

2-3 hvítlauksrif

1-1½  dós kurlaðir tómatar, Hunts t.d. með steiktum lauk

3-4 msk tómatpure

2 knorr fiskiteningar

1 dós kókósmjólk

½ peli rjómi

grænmetiskrydd

2-3 tsk fiskisósa

Fiskur, magn eins og hver vill (rækja,hörpuskel, lax, þorskur, ýsa, skötuselur)

Olían látin hitna, karrýið hitað með henni. Grænmetið saxað og mýkt í olíunni. Þá eru tómatarnir settir saman við, dósin fyllt tvisvar með vatni sem sett er út í pottinn. Síðan kemur tómarpure, teningar, og kókósmjólk. Þetta látið malla smá stund og rjómanum bætt út í. Rétt áður en súpan er borin fram er fiskinum bætt út í og látið sjóða í 2-3 mín, ekki sjóða of lengi. Gott að bæta smá tarragoni út í, gefur sætt kryddbragð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

girnileg uppskrift

Hólmdís Hjartardóttir, 4.5.2008 kl. 14:32

2 identicon

Örugglega góð þessi.

Anna (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 11:44

3 identicon

Ógeðslega góð eins og krakkarnir segja.

Guðný (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband