Kvöldgestir

Hlustaði á þátt Jónasar Jónassonar í gærkvöldi en þar ræddi hann við Ingibjörgu Helenu Verner um sjúkdóminn „perthes” sem hún greindist með. Eftir að hafa hlustað á lýsingar hennar og það sem hún hefur þurft að ganga í gegn um, tel ég mig hafa verið ljónheppna. Hannes Finnbogason læknir kom hingað þegar ég var 8 ára og greindi mig með perthes. Var ég gifsuð frá mitti og niður á ökla á báðum fótum og var látin liggja þannig í 6 mánuði. Ingibjörg talar um hvað henni hafi leiðst á sjúkrahúsinu, því var öfugt farið með mig og ég man fyrsta kvöldið eftir að ég kom heim, hvað mig langaði upp á sjúkrahús að sofa. Það hefur ekki verið neinn dans á rósum að burðast með þessa bæklun, leikfimin var erfið en stundum ágætis afsökun þegar maður nennti ekki. En einhvern veginn druslaðist maður með sínum jafnöldrum og aldrei varð ég fyrir einelti.

Guðný

Ég í mínu gifsi

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Þetta hefur erfitt fyrir 8 ára stelpuskott. 

Anna, 5.5.2008 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband