Undir bláum sólarsali

Picture 040 (Small)

Skruppum yfir í Sauðlauksdal seinni partinn í gær og ætlaði betri helmingurinn að renna fyrir fiski sem hann og gerði en ekkert var að hafa, vatnið alveg steindautt. En það var eitt sem vakti athygli okkar en það var þvílíkur fjöldi af álftum á vatninu, um 30 stykki og höfum við aldrei séð  annan eins hóp af álftum þarna.

Undir bláum sólar sali
Sauðlauks upp í lygnum dali
fólkið hafði af hanagali
hversdags skemmtun bænum á,
fagurt galaði fuglinn sá;
og af fleiri fugla hjali
frygð um sumarstundir;
listamaðurinn lengi þar við undi.

Eggert Ólafsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband