1.4.2008 | 08:43
EKKI LENGUR VIÐHENGI
Skerðing bóta vegna tekna maka hefur verið afnumin.
Lífeyririnn hækkaði bara helling úr kr.25.700.- í kr.26.728.- eða um kr.1.028.-
Í mínu tilfelli hækkaði tekjutryggingin úr kr.48.892.- í kr.78.637.- Fæ ekki fulla tekjutryggingu út af kr.18.000.- sem ég fæ úr lífeyrissjóðum.
Mér finnst ég vera milljóner í dag.
Þetta er ekki aprílgabb.
Athugasemdir
Ég gratúlera Guðný !!!
Anna, 1.4.2008 kl. 08:56
Takk Anna, verst að ég er með flensu og kemst ekki út að eyða fúlgunni.
Guðný (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 09:48
Láttu þér batna
Anna, 1.4.2008 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.