Gleðilega páskahátíð

easterpotOster (Small) potOster (Small)

Árdegis, röðull reis úr nótt,
í roða fór María að gröf Jesú hljótt,
felldi hún tár á föla jörð
sem fann ekkert til, en var náköld og hörð.

Guð hennar var í gröf og svaf,
í guðdýrkun sinni gaf þakklæti af
smyrsl, sem hún bar við barminn sinn,
en brynjaður vopnum var hermaðurinn.

Gröfin var tóm og gatan auð,
og Guð hennar huldi sig, þar stóð hún snauð.
Felldi hún tár við fætur manns
sem fór þarna hjá, framhjá gröf Lausnarans.

María spurði manninn þann
um Meistara sinn, hvar hann lagt hefði hann.
“María, ég er upprisinn,
ég er alltaf hjá þér, ég, Drottinn Guð þinn.”

Guðm. G.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Gleðilega hátíð og hjartans þakkir fyrir aðstoðina í Ásgarði í morgun.

Bestu kveðjur,

Sólveig.

Sólveig Ara (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband