Kvöldmaturinn

Kjöt með grænmeti (frikasse): 
 1/2 kg.
1/2 kg.
1/2 kg.
1 l.
2 tesk.
40 gr.
40 gr.
1 tesk.
lambakjöt
hvítkál
gulrætur eða gulrófur
vatn
salt
smjörlíki
hveiti
söxuð steinselja
 
 Beztur er frampartur af lamba- eða kálfakjöti. Kjötið er smáhöggvið, þvegið úr köldu vatni, heitu vatni hellt á það. Látið ofan í soðið vatn með salti. Þegar sýður, er froðan veidd vel ofan af. Soðið í 15 mín. Gulrófurnar og hvítkálið hreinsað og brytjað. Látið í pottinn og soðið í 20-30 mín. Jafningur nr.2 er búinn til. Látinn út í pottinn og hrært gætilega í, þar til sýður, því kjötið og grænmetið má ekki fara í sundur. Saltað eftir vild og saxaðri steinselju hrært saman við. Hellt upp á fat.
Aths. Hægt er að nota minna af kjötinu og þá meira af grænmetinu. Annars má nota hvaða grænmeti sem er í þennan rétt; sérstaklega er gott að hafa grænar baunir í hann. Baunirnar eru þá settar út í sósuna.

(Úr bókinni "Lærið að matbúa" eftir Helgu Sigurðardóttur)

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband