9.2.2008 | 13:18
Kvöl
Kristín Völundardóttir lögreglustjóri ætti að láta ritskoða hjá sér minnismiðann áður en hún kemur í útsendingu hjá sjónvarpinu. Hún talar um byggð fyrir neðan Stakkagil á Patreksfirði, Þetta gil heitir Stekkagil eða Geirseyrargil. Þá talaði hún um Búðargil í Búðardal. Búðargil er á Bíldudal og Búðardalur er ekki á sunnanverðum Vestfjörðum.
Þetta er svipað og þegar fólk talar um Barðaströnd allt suður í Bjarkalund, sem pirrar okkur svolítið hér fyrir vestan.
Barðaströnd er heiti á strandlengju á sunnanverðum Vestfjörðum að Breiðafirði á milli Vatnsfjarðar og Sigluneshlíðar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.