28.1.2008 | 11:24
Þorrablót
Þorrablót, já ekkert jafnast á við þorrablót
að þenja kviðinn út af hrútspungum,
gallsúrum
þeir virka vel, neðan við nafla á þér
og sultuð svið
súrsaðar bringur, brauð og barinn harðfiskur
þú verður algjört æði af þessu lúxusfæði
ef þú borðar af því nóg.
(lag.sveitaball)
Var á þorrablóti á laugardaginn sem tókst í alla staði vel. Var reyndar í þorrablótsnefnd, en í henni voru 15 konur. Síðastliðið haust var byrjað á því að svíða hrútspunga og hausa í sviðasultu og sett í súr, ásamt bringukollum og lundaböggum? Um miðjan janúar voru rúgkökur og hveitikökur bakaðar.
Síðasta vika fór öll í undirbúnig á mat og skemmtiefni. Soðið var hangikjöt, búin til ný sviðasulta þá voru soðnar rófur í stöppu og kartöflur í mús. Annað sem var á boðstólum var harðfiskur, smjör og hákarl.
Ég setti spurningarmerki við lundabaggana, kann ekki alveg við nafnið á þessum nýtísku lundaböggum, upprúlluðum slögum. Ég man þegar mamma var að búa til lundabagga þá var notað í þá, hjörtu, hálsæðar, gollurshús og ristlamör og að síðustu var þindin saumuð utan um. Þetta þótti manni algert lostæti eða þá úttroðin vélindu, ég tala nú ekki um sviðnar lappir. Í dag er kvartað yfir því að unga fólkið borði ekki sláturafurðir. Er það ekki vegna þess að það hefur ekki fengið að kynnast þessu þar sem mjög erfitt er að nálgast þessar afurðir af hræðslu við eitthvert smit. Það verður að fara með þetta eins og mannsmorð ef maður nælir sér einhversstaðar í óverkaða punga eða lappir.
Vil ég að lokum þakka öllum konunum og öllu þeim sem aðstoðuðu okkur við undirbúnig þorrablótsins.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.