Nýjasta græjan prófuð

60870UW

Í kvöld var nýjasta heimilisgræjan prófuð. Þegar við vorum í höfuðstaðnum um jólin datt húsbóndanum í hug að kaupa sér uppþvottavél. Þetta er náttúrulega smá bilun, við búin að standa við uppvaskið yfir þrjátíu ár meðan ungarnir voru heima svo þegar við erum orðin tvö þá er keypt uppþvottavél. Það er nú smá vandamál í þessu, það tekur hátt í viku að safna í vélina og ekki einu sinni til svo margir matardiskar nema nota sparistellið, höfum ekkert þurft fleiri diska þar sem vaskað var upp tvisvar á dag, mitt mottó hefur verið að safna ekki of miklu leirtaui í skápana bara til að hafa það þar. Ég kom með uppástungu til að leysa þetta mál, borða fyrst af matardiskunum, síðan af meðdiskunum og enda á undirskálunum, þar af leiðandi færu matarskammtarnir alltaf minnkandi eftir því sem liði á vikuna, því aldrei að fá sér tvisvar á diskinn.

Það er ekki öll vitleysan eins

Ég var nú búin að veita honum uppvöskunarorðuna

wayne04


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband