Ungarnir flognir

 Picture 009 (Small)

Þá eru ungarnir flognir burtu nema sá yngsti sem fer á morgun. Það er heldur betur búið að vera kátt í hreiðrinu um helgina, vona að allir séu ánægðir með það sem ég hafði fram að færa. Ég er allavega ánægð með allar þær stórkostlegu afmælisgjafir sem ég fékk. T.d. skrifborðsstól, peninga, kaffivél, dúk, lampa, glös, veski, perlaðar bjöllur og margt, margt fleira. Vil ég hér með þakka öllum innilega fyrir mig, þetta var yndisleg helgi.

Nú þarf ég að fara að undirbúa Reykjavíkurferðina 20. des. Vona bara að veðrið verði til friðs, það er ekki nema sex fjallvegir sem við þurfum að fara yfir. Siggi stormur var að spá rauðum jólum og vona ég bara að það haldi, þó gaman sé að hafa hvít jól.   

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Það eru til milljón leiðir til að eyða tímanum, en ekki ein til að endurheimta hann


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband