4.12.2007 | 08:30
Sólin og jólin
Nú styttist í að sólin hverfi bak við fjöllin, sennilega næst síðast dagurinn sem hún sést hér þar til 6. jan. 2008. Þá kveikir maður bara á dagljósaperunni (þunglyndisperunni eins og ég kalla hana). Það birtir nú heldur betur til um helgina, en þá ætla ungarnir að skreppa aðeins heim í hreiðrið til mömmu gömlu sem er búin að vera á fullu undanfarna daga að útbúa eittvað til að tína í goggana sína. Þá ætlum við gömlu að bregða okkur í höfuðborgina um jólin og er það í fyrsta skipti sem við erum ekki heima um hátíðirnar fyrir utan ein jól fyrir 40 árum sem ég var ekki heima, en þá fæddist lítið jólabarn sem við ætlum að fagna með 22. des.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Þess verður getið sem gert er
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.