visir.is

bilde

Danska verslanakeðjan Irma hefur skilað af sendingu af rauðvíni frá víngarði Hinriks danaprins , vegna þess að ómögulegt var að fá tappann úr flöskunni. Þetta er gert kjölfar kvartana frá fjölda viðskiptavina keðjunnar, sem gáfust upp á því að ná í hina konunglegu dropa.

,,Við fengum fjölda kvartana yfir því að tappinn væri svo fastur í flöskunni að hann brotnaði þegar fólk reyndi að draga hann út. Viðskiptavinirnir enduðu annað hvort með korkrestar í víninu sínu, eða gátu alls ekki náð tappanum úr. Við ákvaðum við að við myndum ekki bjóða viðskiptavinunum upp á að þurfa að hringla með þettga og innkölluðum sendinguna." sagði talsmaður Irma við B.T. blaðið.

Prins Hinrik hefur nú fengið flöskurnar allar sendar aftur á vínekruna sína, þar sem handsterkt fólk mun væntanlega dunda sér við að reyna að opna þær. ,,Það er ekkert að víninu. Þessvegna er sendingin á leið aftur til Cayx , þar sem nýjir tappar verða settir í flöskurnar." sagði starfsmaður vínekrunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband