16.11.2007 | 13:09
Á degi íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu
vefst mér óðara um tönn
með fyrstu morgunskímunni.
Kaldur gustur málfræðinnar
ásamt napurri stafsetningarreglu
mæta mér í útidyrunum.
En trefill orðanna
er mér eðlislægur
ásamt hatti gæsalappa
og upphrópana.
Augnablik nem ég staðar
á þröskuldi þátíðar.
En með lýsingarhátt í hávegum
stekk ég út mót degi íslenskrar tungu,
Því áfram og upp,
það er Málið.
Gústa Gústafsson skólastjóri Grunnskóla Vesturbyggðar
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Það sem mörg okkar þarfnast mest er einhver sem fær okkur til að leggja af mörkum það sem við getum
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.