14.11.2007 | 19:02
Eignaðist bók í gær...
sem aldrei hefur verið til á mínu heimili.
Hver skrifaði Biblíuna og hvernig vissi hún eða hann allt um söguna?
Spyrjandi
Hólmfríður Víkingsdóttir, f. 1994
Svar
Ritið sem við köllum Biblíu er í raun margar bækur enda þýðir orðið biblía bækur. Við skiptum Biblíunni oftast í tvennt og tölum um Gamla testamentið og Nýja testamentið. Í Gamla testamentinu eru 39 rit og það er upprunalega ritað að mestu á hebresku. Í Nýja testamentinu eru 27 rit og það var fyrst ritað á grísku.Bækur Biblíunnar voru skrifaðar á löngum tíma, Gamla testamentið frá árunum 1300-200 f. Kr. og Nýja testamentið var skrifað á síðari hluta fyrstu aldar e. Kr. Bókunum var síðan safnað saman í eitt safnrit og endanleg gerð þess er frá því um 400 e. Kr. Ýmis rit urðu þá útundan og þóttu ekki tæk í Biblíuna. Þau kallst apókrýfar bækur. Tómasarguðspjall er til dæmis eitt af apókrýfum ritum Nýja testamentisins og hægt er að lesa um það í svari við spurningunni Hvar get ég séð eða lesið Tómasarguðspjall? Um apókrýfar bækur er hægt að lesa nánar í ítarlegu svari við spurningunni Hvað eru apókrýfar bækur Biblíunnar?
Mynd: Liam's Pictures from Old Books
Af vísindavefnum
,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Sjóndeildarhringur hvers manns takmarkast einungis af hugarflugi hans
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.