Jólabækurnar mínar ?

 í manns munni (Small)

 kvöldlag við kirkjudyr (Small)

Ætla að dobla bóndann til að gefa mér þessar bækur í jólagjöf "Í manns munni", "Kvöldlag við kirkjudyr", og einnig þá nýjust "Yfir húmsins haf".

http://www.thingeyri.is/pistlar/detail_pistlar.asp?NewsID=138

 Yfir húmsins haf eftir síra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Þetta er þriðja bókin sem Vestfirska forlagið gefur út eftir síra Ágúst þar sem segir frá kirkjum og kirkjustöðum á Vestfjörðum í stuttu og hnitmiðuðu máli. Í manns munni fjallar um staðina í Barðastrandarsýslu og Kvöldlag við kirkjudyr segir frá Vestur-Ísafjarðasýslu. Sú nýjasta, Yfir húmsins haf fjallar um kirkjur og staði í Norður-Ísafjarðarsýslu. Alls eru þetta 43 kirkjusetur hér vestra sem fróðleiks- og sagnapresturinn segir frá með sínu forna lagi, en fáir ef nokkrir núlifandi fræðimenn skrifa slíkan texta sem síra Ágúst Sigurðsson.
Um 500 ljósmyndir eru í þessari vestfirsku kirkjusögu og er þó Strandasýslan eftir. Margar þeirra hafa aldrei birst áður og kennir þar margra grasa. Er ólíklegt að nokkurs staðar séu saman komnar jafn margar frásagnir í myndum af vestfirskum kirkjum, prestum, eiginkonum þeirra og niðjum, leikmönnum, kirkjulegu starfi og athöfnum sem í umræddum bókum Möðruvellingsins. Myndasöfnun hans úr vestfirskum prestaköllum er með ólíkindum og lýsir miklum dugnaði og þreki fræðiklerksins. En síra Ágúst á líka hauk í horni þar sem er eiginkona hans. Guðrún L. Ásgeirsdóttir, sem styður hann með ráðum og dáð.
Verð: 2.900,- kr.

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Sérviska er ódýrasta uppbótin fyrir skapfestu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband