7.11.2007 | 12:30
Völubeinið
Fyrir einhverjum árum eignaðist ég völubein, síðan þá hef ég spurt marga hvar nákvæmlega í kindinni beinið væri, en enginn hefur haft svar við því. Í gærkveldi rakst hér inn ungur bóndi og barst þetta í tal, hvar völubeinið væri. Hann velti beininu smá stund fyrir sér og spurði svo, ertu viss um að þetta bein sé úr kind? held að hann hafi verið að grínast. Hann sagðist nú aldrei hafa velt þessu fyrir sér en sagði svo, ég man þegar maður hæklaði of hátt þá var sagt að maður væri völuþjófur. Þar með upplýstist leyndarmálið um völubeinið.
Völu - þjófur KK
fláningsmaður sem lætur völuna fylgja fótleggnum.
Nýtt íslenskt leikfang, Völuskrín, sett á markað
Nýtt leikfang verður kynnt til sögunnar í dag. Leikfangið heitir Völuskrín og mun iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, veita fyrsta eintakinu viðtöku.
Leikfangið er leikfangaskrín sem heitir Völuskrín, sem er vísun í þá hirslu sem börn geymdu gersemar sínar í áður fyrr. Völuskrínið inniheldur eftirgerðir þeirra dýrabeina sem notuð voru í þá daga til að búa til hugarheim alvöru sveitalífs þar sem tábein voru kindur, völubein voru kýr og kjálkar voru hestar. Í skríninu eru eftirgerðir þrettán beina ásamt karli og kerlingu. Völuskrínið sjálft er lítill kassi með fallegri nýtískulegri hönnum sem getur þjónað margs konar tilgangi við að aðstoða byggingu þess hugarheims sem nútímabörn munu búa sér til úr þessum aldna íslenska efnivið, að því er segir í fréttatilkynningu. Það verða ekki einungis íslensk börn sem fá að kynnast leyndardómum beinanna þar sem Völuskrínið er einnig markaðssett fyrir erlenda ferðamenn. Það er gert í ljósi þess að þörf er á íslenskum minjagripum fyrir börn og með það fyrir augum eru leiðbeiningar leikfangsins, með útskýringum á hinum gamla íslenska arfi, á fimm tungumálum.
Völuskrínið verður komið í helstu leikfanga- og ferðamannaverslanir mánudaginn 16. október nk.
Hugmyndasmiður og eigandi Völuskríns er Þórey Vilhjálmsdóttir viðskiptafræðingur. Að þróuninni komu einnig sagnfræðingur og ýmsir hönnuðir, en Lóa Auðunsdóttir vöruhönnuður hefur haft yfirumsjón með hönnuninni.
Verkefnið hlaut styrk úr verkefninu Átak til atvinnusköpunar frá Iðnaðarráðuneytinu árin 2004 2005.
´´´´´´´´´´´´´´´´´´´
Einn hreppir það annar sleppir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.