Bindishnútur

Á heimilinu voru til skamms tíma fjórir karlmenn, aðeins einn þeirra kann að gera bindishnút. Í gær vorum við hjónin að fara í matarboð og bóndinn ætlaði að tjalda nýja bindinu sem keypt var í síðustu Reykjavíkurferð. En ó,ó, sá sem kann að binda hnút ekki tiltækur svo ég tók að mér að gera hnútinn, ekki gat ég látið hann fara með einhvern rembihnút um hálsinn í veisluna. Meðan ég var að binda var ég eitthvað að tauta um að jólagjöfin til þeirra (karlm. þriggja) væri fundin, myndbandsspóla með kennslu í bindishnúta gerð.  

 Picture 004

Hnúturinn sem ég hnýtti í gær, kannski ekki alveg 100% en skárri en pelastikk sem hann er góður í og hefur reynt að kenna mér.

Það gekk ekki að gefa þeim svona spjald með leiðbeiningum.

Mér datt í hug að goggla orðið "bindishnútur" og fann þá alveg snilldar síðu.

Þarftu að mæta með bindi?

Ertu upp á konuna þína kominn með bindishnútinn? Er bindið enn með hnút sem var bundinn á það á síðustu jólum?

http://nkn.khi.is/nkn05/

Nú gæti ég bara vísað mínum manni á tölvuna en þá kom upp annað vandamál, minn ektamaki er haldinn þvílíkri tölvufælni að ég get bara ekki lagt þetta á hann. Svo nú gefst ég bara upp á hnútakennslu og geri þetta sjálf. Læt ekki einhvern ómerkilegan bindishnút komast upp á milli vina, nóg af hnútum í þessu þjóðfélagi.

Að lifa er eins og að elska - skynsemin mælir gegn því en heilbrigðar hvatir með því


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband