4.10.2007 | 07:57
Rokkpils
Ég man þegar ég var um 10-12 ára þá saumaði mamma á okkur systurnar svokölluð rokkpils og fyrsta daginn í nýja pilsinu þurfti ég nú að bregða mér út um gluggann í herberginu mínu (sem var á neðri hæð hússins) og festi pilsið í gluggakrækjunni og reif það. Mamma klippti út úr svörtu efni kött sem hún saumaði yfir rifuna, pilsið var að mig minnir ljósfjólublátt. Ég held bara að pilsið hafi verið flottara á eftir.
Nýlega rakst ég svo á svona pils á netinu, þau eru semsagt enn í tísku eftir tæp 50 ár. Þetta pils er með hundi en mitt var með ketti.
"Með því að reyna það "ómögulega"má ná eins langt og hægt er"
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.